Bíó og sjónvarp

Connery sagði nei við Spielberg

Skoska sjarmatröllið verður ekki með í fjórðu kvikmyndinni um fornleifafræðinginn. Harrison Ford verður hins vegar á sínum stað.
Skoska sjarmatröllið verður ekki með í fjórðu kvikmyndinni um fornleifafræðinginn. Harrison Ford verður hins vegar á sínum stað.

Sean Connery hefur endanlega staðfest að hann muni ekki taka að sér hlutverk föður Indiana Jones í fjórðu kvikmyndinni um fornleifafræðinginn en tökur á henni hefjast í næsta mánuði. Connery sló í gegn sem Henry Jones í þriðju myndinni sem sýnd var fyrir 18 árum en skoska sjarmatröllið tilkynnti nýlega að hann væri hættur kvikmyndaleik.

Leikstjórinn Steven Spielberg og framleiðandinn George Lucas þrýstu mikið á Connery um að taka hlutverkið að sér en sá skoski segir að eftir langan umhugsanartíma hafi hann ákveðið að láta fyrri ákvörðun standa. „Ef eitthvað hefði getað fengið mig til að hætta við að hætta, þá væri það Indiana Jones. Ég nýt lífsins hins vegar svo mikið án kvikmyndaleiks að ég ákvað að taka ekki boði Spielberg,“ segir Connery.

Harrison Ford verður sem fyrr í hlutverki Indiana Jones en af öðrum leikurum má nefna Cate Blanchett, John Hurt og Ray Winstone. Myndin verður frumsýnd næsta sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.