Dagur vonar stendur uppúr 1. júní 2007 05:00 Segir Dag vonar standa uppúr en Ófagra veröld eigi ekki heima í hópi tilnefndra sýninga.
Dagur vonar, Killer Joe, Leg, Mr. Skallagrímsson og Ófagra veröld eru tilnefndar sem bestu sýningar leikársins 2007. Athygli vekur að Benedikt Erlingsson leikstýrir tveimur sýninganna. Í Óperunni í dag klukkan fjögur verður tilkynnt um tilefningar til Grímunnar – íslensku leiklistarverðlaunanna – en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru það áðurnefndar sýningar sem verða tilnefndar til aðalverðlaunanna: Sýning ársins. Aðeins eins sýning er Þjóðleikhússins en sú er Leg eftir Hugleik Dagsson í leikstjórn Stefáns Jónssonar. Hlýtur það að teljast fremur rýr uppskera en Þjóðleikhúsið hefur hingað til mátt vel við una þegar Gríman er annars vegar. Átti tvær tilnefningar í fyrra og sigraði í þessum flokki með sýningun sinni Pétur Gautur. Leikfélag Reykjavíkur á hins vegar tvær sýningar tilnefndar að þessu sinni. Dagur vonar eftir Birgi Sigurðsson sem Hilmir Snær Guðnason leikstýrði og svo Ófagra veröld eftir Anthony Neilsson í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Leikhúsið Skámáni á sýninguna Killer Joe eftir Tracy Letts en Stefán Baldursson er leikstjóri þeirrar sýningar. Er þá ónefnd sýning Benedikts Erlingssonar sem hann gerði fyrir Söguleikhús Landnámssetursins: Mr. Skallagrímsson. Dr. Jón Viðar Jónsson leiklistarfræðingur hefur skrifað dóm um allar þessar sýningar í tímaritið Ísafold ef undan er skilin Mr. Skallagrímsson – sýning sem Jón Viðar segir fína en einleik og erfitt að bera saman við hinar. „Dagur vonar stendur uppúr.“ Leikrit Birgis á jafnvel enn meira erindi í dag en þegar það var frumsýnt fyrir tuttugu árum að sögn Jóns Viðars og allt of sjalgæft sé að eldri verk íslens séu sett upp - líkt og um einnota fyrirbæri sé að ræða. Leiklistarfræðingurinn undrast að Draumaland Hafnarfjarðarleikhússins sé ekki meðal hinna tilnefndu. „Óvæntasta og djarfasta sýning ársins.” En ef sjónum er beint að þeim sýningum sem ómaklega eru tilnefndar stendur ekki á svörum: „Ófagra veröld. Ekki illa unnin sýning sem slík en ekkert frammúrskarandi. Verkið er hins vegar ekki merkilegt.” Að öðru leyti segir Jón Viðar aðrar sýningar eiga skilið tilnefningu. Nefnir reyndar að það hefði mátt sjá tilnefndar sýningar á borð við Hjónabandsglæpi og Sitji guðs englar. Báðar sýningar Þjóðleikhússins. Þó veldur frammistaða flaggskips leikmenningar landsins Jóni Viðari vonbrigðum. „Þetta er ekkert sérstakt leikár. Og Þjóðleikhúsið þarf að taka sig mjög á. Því miður var frammistaðan alltof slöpp.”
Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Tár eftir hverja sýningu Lífið Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Fleiri fréttir Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira