Hin hliðin á sögunni 15. febrúar 2007 09:30 Systramynd Flags of our Fathers er tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Myndin Letters from Iwo Jima í leikstjórn Clint Eastwood verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi á föstudagskvöld. Um er að ræða systurmynd Flags of our Fathers og voru þær báðar teknar hér á landi eins og þekkt er orðið. Þegar langt var liðið á seinni heimsstyrjöld mættust Bandaríkjamenn og Japanir í frægri orrustu á eyjunni Iwo Jima. Í Flags of our Fathers var sagan sögð frá sjónarhóli Bandaríkjamanna en nú er ljósinu varpað á japönsku hermennina og upplifun þeirra en flestir þeir sem sendir voru til eyjunnar vissu að þeir myndu ekki eiga afturkvæmt. Þeirra á meðal eru bakarinn Saigo sem óskar einskis nema að fá að hitta nýfædda dóttur sína; Baron Nishi, þekktur knapi sem hefur keppt á Ólympíuleikum; Shimizu er fyrrum herlögreglumaður sem hefur enn ekki kynnst hörmungum stríðsins og liðþjálfinn Ito, sem sviptir sig fyrr lífi en að gefast upp. Hershöfðingi þeirra er sigldur maður, hefur meðal annars komið til Bandaríkjanna og þótt hann geri sér grein fyrir fánýti styrjalda veit hann hvernig hægt er að gera innrásarhernum skráveifu. Letters from Iwo Jima er tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta myndin. Helstu hlutverk eru í höndum Ken Watanabe (The Last Samurai), Ryo Kase og Shidou Nakamura.
Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið Sögulegt parhús í Hlíðunum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fleiri fréttir Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira