Miðjarðarhafsför í Þjóðleikhúsinu 10. febrúar 2007 11:45 Hálsfesti Helenu. Æfingar eru hafnar í Þjóðleikhúsinu.
Þjóðleikhúsið æfir nú af fullum krafti leikritið Hálsfesti Helenu eftir margverðlaunaðan kanadískan höfund, Carole Fréchette. Verkið gerist á okkar tímum fyrir botni Miðjarðarhafs og er í stuttu máli stefnumót vestrænna viðhorfa við þau austrænu, séð með augum aðalpersónunnar Helenu sem kemur úr norðri. Verkið var frumflutt í Damaskus árið 2002 þar sem líbanskur leikstjóri, Nabil El Azan, setti það á svið en hann er giftur íslenskri konu, Ragnheiði Ásgeirsdóttur leikhúsfræðingi. Þar léku hlutverkin leikarar jafnt frá Vesturlöndum sem Líbanon, Palestínu og Sýrlandi. Arnar Jónsson ætlar að leika öll karlhlutverk verksins (og svo skemmtilega vill til að hann er frændi Ragnheiðar sem gift er leikstjóranum frá Líbanon sem fyrstur setti verkið á svið!). Aðalhlutverkið, Helenu, leikur ein af okkar allra norrænustu leikkonum, Edda Arnljótsdóttir. Eina hlutverkið sem þá er eftir, arabíska konu, leikur hin dökkbrýnda Guðrún Snæfríður Gísladóttir. Leikstjóri er María Sigurðardóttir, leikmynd og búningar eru í höndum hinnar elegant og ítalskt menntuðu Helgu I. Stefánsdóttur. Þýðinguna úr frönsku gerði Hrafnhildur Hagalín rithöfundur sem stúderaði við Svartaskóla. Birtan kemur frá Lárusi Björnssyni ljósahönnuði. Frumsýning er áætluð í lok mars. Verkið hefur verið sýnt m.a. víða um Kanada, í Frakklandi, Belgíu, Sviss og Senegal og í undirbúningi eru nú tvær uppfærslur í Japan og ein á Martinique.
Mest lesið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Fleiri fréttir Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Fyrsta íslenska myndin í Cannes Premiere-flokki Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Viðræður hafnar um framhald á Adolescence Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Þeir munu túlka Bítlana í myndum Sam Mendes Sjá meira