Bíó og sjónvarp

Nýju fötin keisarans

Leikstjórinn Robert Altman Gerði stólpagrín að tískuvikunni í París.
Leikstjórinn Robert Altman Gerði stólpagrín að tískuvikunni í París.

Kvikmyndasafn Íslands sýnir mynd Roberts Altman, Prét-á-Porter kl. 20 kvöld. Myndin er paródía á tískuvikuna í París og var kvikmynduð á einni slíkri.

Altman lést í nóvember í fyrra en hans er meðal annars minnst fyrir myndirnar Gosford Park frá 2001 og Short Cuts sem hann gerði árið 1993. Hans síðasta mynd var A Prairie Home Companion.

Altman gerði ekki myndir sem voru öllum að skapi og þær voru ekki gerðar eftir Hollywood formúlum. Umsagnir um Prét-á-Porter voru misvísandi en flestum bar saman um að henni væri vel leikstýrt og að í henni kæmu fram margir mjög góðir leikarar. Endirinn er að sögn sumra hreint

stórkostlegur og hefur verið líkt við nútímalega útgáfu af sögunni um Nýju fötin keisarans.

Með helstu hlutverk í myndinni fara Sophia Loren, Marcello Mastroianni og Kim Basinger.

Sýningar Kvikmyndasafnsins fara fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði en húsið er opnað um það bil hálftíma fyrir sýningu. Myndin verður síðan endursýnd næstkomandi laugardag kl. 16.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.