Bíó og sjónvarp

Anita í 1500 kvikmyndahús

Anita Briem leikur aðalhlutverkið í stórmyndinni Journey 3-D sem miklar vonir eru bundnar við.
Anita Briem leikur aðalhlutverkið í stórmyndinni Journey 3-D sem miklar vonir eru bundnar við.

Kvikmyndin Journey 3-D sem Aníta Briem leikur í verður dreift í 1.500 kvikmyndahús í Bandaríkjunum á næsta ári.

Kvikmyndinni Journey 3-D verður dreift í fimmtán hundruð kvikmyndahús í Bandaríkjunum þegar hún verður frumsýnd sumarið 2008. Þetta kom fram á nokkrum erlendum vefsíðum í gær. Miðað við þessa miklu dreifingu í Bandaríkjunum er ljóst að dreifingaraðilarnir New Line Cinema og Walt Disney-risinn binda miklar vonir við kvikmyndina og gera ráð fyrir að hún verði einn af stóru smellunum á næsta ári.

Kvikmyndin var að hluta til tekin upp hér á Íslandi en með eitt aðalhlutverkanna fer íslenska leikkonan Anita Briem, auk Brendan Fraser og Josh Hutcherson. Hún er lauslega byggð á heimsþekktri vísindaskáldsögu Jules Verne, Voyage au centre de la Terre, en þar kemur Snæfellsjökull mikið við sögu.

Eftir því sem kemur fram á kvikmyndasíðunni Coming Soon markar kvikmyndin ákveðin tímamót í kvikmyndagerð. Í fyrsta skipti verður þrívídd varpað upp á stafrænt kvikmyndatjald án þess að áhorfendur þurfi að notast við sérkennileg gleraugu en búast má við að þessi tækni verði orðin allsráðandi innan örfárra ára. Leikstjórinn Eric Brevig og tökumaðurinn Chuck Shuman notuðu meðal annars tökuvélar sem stór-leikstjórinn James Cameron byrjaði að þróa fyrir tvær þrívíðar heimildarmyndir sínar Aliens of the Deep og Ghosts of the Abyss.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.