Dómur kveðinn upp yfir Hussein á sunnudag 3. nóvember 2006 17:05 MYND/AP
Búist er við því að dómur verði kveðinn upp á sunnudag yfir Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, og sjö samverkamönnum hans vegna morðs á nærri 150 sjítum í bænum Dujail árið 1982. Fólkið lét hann drepa eftir að reynt var að ráða hann af dögum í bænum. Fari svo að hann verði sakfelldur má búast við því að hans bíði dauðadómur sem framfylgt verður með hengingu. Saddam Hussein var steypt af stóli með innrás Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra í mars árið 2003. Hussein komst hins vegar undan og var í felum allt fram til ársloka 2003 að hann var handsamaður. Réttarhöldin í málinu, sem hófust í október í fyrra, hafa þótt farsakennd og hefur dómari oft þurft að vísa Saddam úr dómsal vegna háreystis. Þá hafa þrír lögmenn úr verjendateymi Saddams og samverkamanna hans verið drepnir. Hussein hefur verið sakaður um fleiri glæpi og enn standa yfir réttarhöld yfir honum og mönnum úr stjórnartíð hans vegna þjóðarmorðs á Kúrdum seint á níunda áratug síðustu aldar.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki lengur vonlaust tilfelli sem enginn hefur trú á Innlent Sigríður Björk segir af sér Innlent Öll gögn á ensku annars ógildist krafan Innlent Greindur af gervigreind og greiðir fyrir aðgerðina sjálfur Innlent Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Erlent Rússar nýta samsæriskenningar til að réttlæta innrásina í Úkraínu Innlent Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Erlent Hálfur annar tími og þrjú ólík farartæki til að sækja slasaðan göngumann Innlent Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Erlent „Hvorki dropi né snjókorn úr lofti eins langt og séð verður“ Veður Fleiri fréttir Mótmæli gegn loftmengun í Nýju-Delí: „Ég sakna þess að anda“ Trump náðar Giuliani og aðra tengda kosningasamsærinu í Georgíu Frumvarp um fjármögnun alríkisins samþykkt í öldungadeildinni Flugvallarþorp gæti öðlast framhaldslíf Forstöðumaður BBC segir af sér vegna misvísandi umfjöllunar Saka Rússa um að ógna kjarnorkuöryggi í Evrópu Bretlandsher aðstoðar Belga vegna drónaflugs Nærri milljón rýmir vegna ofurfellibyls Þrír látnir í risaöldum á Tenerife Gestir Bylgjunnar fá að synda undir þessu þaki Aflýsa yfir þúsund flugferðum Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Trump veitir Ungverjum undanþágu Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre „Samlokumaðurinn“ sýknaður Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Rannsaka hakakrossa sem voru málaðir með blóði úr manni Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Sjá meira