Óvíst um framsal 23. október 2006 17:25 Bandaríski kvikmyndaleikarinn Wesley Snipes í hlutverki vampírubanans Blade. MYND/New Line
Stjórnvöld í Namibíu hafa ekki fengið beiðni frá bandarískum stjórnvöldum um að framselja kvikmyndaleikarann Wesley Snipes sem er ákærður fyrir að hafa svikið jafnvirði rúmlega 800 milljóna íslenskra króna undan skatti. Snipes er nú staddur í Namibíu við tökur á næstu kvikmynd sinni. Lidwina Shapwa, talsmaður dómsmálaráðuneytisins í Namibíu, segir að ráðamenn þar í landi hafi frétt af ákærunni gegn Snipes í fjölmiðlum. Engin formleg beiðni um framsal hafi borist. Snipes er sagður hafa fengið 12 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega 826 milljóna íslenskra króna, endurgreidda á fölskum forsendum. Hann er nú eftirlýstur og að sögn fjölmiðla hefur handtökuskipun verið gefin út á hendur honum. Snipes, sem er 44 ára og hefur leikið í rúmlega þrjátíu kvikmyndum, þar á meðal Jungel Fever, White Men Can´t Jump og Blade. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsi verði hann sakfelldur. Framleiðandi nýjustu myndar Snipes segir þetta mál ekki hafa áhrif á tökur hennar og Snipes verði í Namibíu þar til þeim ljúki um miðjan desember. Bandaríkin og Namibía hafa ekki gert með sér samkomulag um framsal á eftirlýstum mönnum eða föngum. Það kom í ljós í síðasta mánuði þegar það uppgötvaðist að tölvusérfræðingurinn og milljónamæringurinn Jacob "Kobi" Alexander hafði búið um nokkurt skeið í Namibíu en hann var eftirlýstur. Hægt er að leggja framsalsbeiðni fyrir dómstóla landanna tveggja.
Erlent Fréttir Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sjá meira