Hádegistónleikar í Íslensku óperunni 5. október 2006 14:25 Finnur Bjarnason tenór kemur fram á hádegistónleikum hjá Óperunni þriðjudaginn 10. október
Hádegistónleikaröð Íslensku óperunnar hefur fest sig í sessi sem einn af föstum dagskráliðum Óperunnar undanfarin ár og alls verða fimm hádegistónleikar á dagskránni í vetur. Fyrstu hádegistónleikar vetrarins eru þriðjudaginn 10. október kl. 12.15. Finnur Bjarnason, tenór, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó, flytja ljóð eftir Robert Schumann á tónleikunum. Finnur syngur um þessar mundir hlutverk Belmonte í Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir Mozart í Óperunni, en Finnur er búsettur í Berlín og hefur sungið í fjölmörgum óperuuppfærslum víða um Evrópu á undanförnum árum. Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari, hefur starfað á Íslandi í rúma tvo áratugi og komið fram á ótal kammertónleikum, en einnig sem einleikari, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Tónleikarnir standa yfir í c.a 40 mínútur og er tilvalið fyrir þá sem starfa eða búa í miðbænum að taka sér örstutt frí frá dagsins önnum og líta inn í Óperuna í hádeginu og hlýða á ljúfa tóna. Samlokur og drykkir eru til sölu í anddyri Óperunnar bæði fyrir og eftir tónleikana og er því tilvalið fyrir gesti að slá tvær flugur í einu höggi og næra bæði líkama og sál á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í vetur. Nánari upplýsingar er að finna á Óperuvefnum www.opera.is.
Lífið Menning Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar Lífið Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Lífið Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Lífið Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Lífið Klámhundarnir engu gleymt Gagnrýni Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Lífið Höguðu sér vel á árshátíð Haga Lífið Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Lífið Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Lífið Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Lífið Fleiri fréttir Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ „Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Plokkað af krafti með forsetamaka „Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi Krakkatía vikunnar: Kindarlegur bangsi í Feneyjum Megan Thee Stallion sakar Klay Thompson um framhjáhald Oddvitaáskorunin: Lét gervigreindina sjá um kvöldmatinn Allt það helsta frá Ungfrú Ísland „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Fréttatía vikunnar: Jakkaföt, hlaupaföt og grænn loðbúningur Sjá meira