Ekki hafðir með í ráðum 13. september 2006 12:45 Stjórnarhermaður borinn til grafar á Srí Lanka. MYND/AP
Stjórnvöld á Srí Lanka neita því að hafa samþykkt í gær að taka skilyrðislaust þátt í friðarviðræðum við uppreisnarmenn Tamíltígra í landinu. Fulltrúar þeirra eru þó tilbúnir til viðræðna hætti tígrarnir árásum. Fundað var um friðarferlið í Srí Lanka í Brussel í Belgíu í gær. Fulltrúar Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Japans og Noregs sátu fundinn. Eftir fundinn staðfestu fulltrúar Japans að bæði stjórnvöld á Srí Lanka og Tamíltígrar hefðu samþykkt að setjast niður til friðarviðræðna án nokkurra skilyrða. Rætt var um að þær viðræður myndu hefjast í október. Þorfinnur Ómarsson, upplýsingafulltrúi norræna vopnahléseftirlitsins, sagði þetta þýðingarmikið skref í átt til friðar. Tamíltígrarnir drógu sig út úr friðarviðræðum í apríl á þessu ári og til átaka kom milli fylkinganna í júlí og hafa þau kostað fjölmörg mannslíf. Vopnahlé hefur verið í gildi í landinu síðan árið 2002. Það var svo í morgun sem stjórnvöld á Srí Lanka sendu frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að þau hefðu ekki samþykkt að taka skilyrðislaust þátt í þessum viðræðunum og að þau hefðu ekki verið höfð með í ráðum í gær. Fulltrúar stjórnvalda lögðu þó áherlsu á ráðamenn hefðu skuldbundið sig til að taka þátt í friðarviðræðum með Tamíltígrunum svo fremi að hinir síðarnefndu samþykktu að hætta öllum árásum þannig að hægt verði að sannreyna það. Í yfirlýsingu frá stjórnvöldum segir að þá verði hægt að semja um hvenæar og hvar yrði sest að samningaborðinu og það ákveðið í samvinnu við fulltrúa vopnahléseftirlitsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira