Brottnámið úr kvennabúrinu 29. ágúst 2006 14:30 Aðstandendur sýningarinnar á fyrstu æfingu.
Fyrsta verkefni Íslensku óperunnar starfsárið 2006-2007 er uppfærsla á Brottnáminu úr kvennabúrinu eftir Mozart en tónskáldið á 250 ára afmæli í ár og hefur þess verið minnst víða um heim. Undirbúningur vegna sýningarinnar er í fullum gangi og um þessar mundir vinnur starfsfólk Óperunnar hörðum höndum við að setja upp sviðsmyndina, sauma búningana ásamt öðrum undirbúningi en sviðsæfingar á verkinu hófust mánudaginn 28. ágúst. Alls taka fimm einsöngvarar þátt í sýningunni auk Pálma Gestsonar leikara sem fer með hlutverk Selim sem er talhlutverk en þetta er í fyrsta sinn sem Pálmi tekur þátt í uppfærslu hjá Íslensku óperunni. Bjarni Thor Kristinsson, bassi, fer með hlutverk Osmins en hann hefur komið fram í helstu óperuhúsum í Evrópu við góðan orðstír undanfarin ár en Bjarni söng hlutverk Gamla mannsins í Galdra Lofti hjá Íslensku óperunni fyrir tíu árum. Með hlutverk Belmonte fer Finnur Bjarnason, tenór, en hann er fastráðin við Komische Oper í Berlín og hefur komið fram víða í Evrópu og Bandaríkjunum á undanförnum árum. Finnur söng síðast hjá Íslensku óperunni árið 2001 þegar hann fór með hlutverk Tamino í Töfraflautunni. Snorri Wium, tenór, sem fer með hlutverk Pedrillo hefur sungið í all mörgum uppfærslum hjá Íslensku óperunni m.a í Toscu og Sweeney Todd en hann hefur verið búsettur í Vín að undförnu. Katharina Th. Guðmundsson, sópran, er frá Austurríki og fer með hlutverk Blonde en þetta er fyrsta hlutverk hennar hjá Íslensku óperunni en hún kom fram á hádegistónleikum á síðasta ári með eiginmanni sínum Einari Th. Guðmundssyni. Síðast en ekki síst er það hin suður- afríska sópransöngkona Angela Gilbert sem fer með hlutverk Konstönzu, en hún hefur komið fram víða um heim og hlaut á meðal annars sérstaklega góða dóma fyrir frammistöðu sína í hlutverki Luciu í Lucia di Lammermoor eftir Donizetti hjá San Diego óperunni í febrúar sl. Leikstjóri er Jamie Hayes en þetta er fjórða uppfærslan sem hann leikstýrir hjá Íslensku óperunni. Hljómsveitarstjóri er Kurt Kopecky og aðstoðarhljómsveitarstjóri er Daníel Bjarnason. Leikmyndina hannar Snorri Freyr Hilmarsson og búningahönnuður er Filippía Elísdóttir. Ljósahönnuður er Björn Bergsteinn Guðmundsson. Brottnámið úr kvennabúrinu verður frumsýnt 29. september og alls verða 10 sýningar á verkinu. Brottnámið úr kvennabúrinu var fyrsta óperan sem Mozart samdi fyrir óperuhús Vínarborgar eftir að hann fluttist þangað í óþökk fjölskyldu sinnar vorið 1781. Með henni sýndi hinn 25 ára gamli Mozart að hann hafði þegar náð fullkomnum tökum á óperuforminu og var fær í flestan sjó. Á námskeiði Vinafélags Íslensku óperunnar og Endurmenntunar Háskóla Íslands sem hefst 3. október nk. mun Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingu fjalla um óperuna og efni hennar. Farið verður yfir helstu einkenni tónlistarinnar og auk þess verður fjallað um „tyrknesk" áhrif í tónlist Mozarts í óperunni og víðar, en óperan gerist í Tyrklandi á 17. öld. Skráning og nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Endurmenntunar HÍ; www.endurmenntun.is. Nánari upplýsingar um sýningar á Brottnáminu úr kvennabúrinu í Íslensku óperunni er að finna á Óperuvefnum www.opera.is.
Lífið Menning Mest lesið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Fleiri fréttir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Sjá meira