Erlent

Komið í veg fyrir heiðursmorð

43 ára gamall danskur maður af pakistönsku bergi brotnu er sagður hafa komið í veg fyrir að svonefnt heiðursmorð yrði framið á systur sinni. Systurina, sem er 31 árs, átti að drepa þar sem hún vildi skilja við mann sem hún hafði verið þvinguð til að giftast á sínum tíma. Því skipaði faðir þeirra manninum að myrða systur sína en það aftók hann með öllu. Faðirinn fékk þá tvo menn til að ganga í skrokk á syninum með kylfum og öðrum bareflum og fékk hann af því talsverðan áverka. Nú hefur lögreglan handtekið ofbeldismennina tvo, föðurinn og tvo mága mannsins, og verða þeir líklega kærðir fyrir grófa líkamsárás.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×