Erlent

Ófriðarskýin hlaðast upp

Forsætisráðherra Ísraels segir að Líbanar hafi kastað stríðshanskanum í morgun þegar skæruliðar Hizbollah-samtakanna tóku tvo ísraelska hermenn í gíslingu. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fordæmdi gíslatökuna harðlega í yfirlýsingu sinni í dag.

Horfurnar fyrir botni Miðjarðarhafs dökknuðu um allan helming í morgun þegar til óvenjuharðra átaka kom á milli ísraelskra hermanna og skæruliða, sem tilheyra Hizbollah-samtökunum, á umdeildu svæði á landamærum Ísraels og Líbanon. Þeim lyktaði með að sjö hermenn féllu og tveir til viðbótar voru teknir til fanga. Ekki leið á löngu þar til Ísraelar hófu árás á búðir Hizbollah af láði, legi og lofti, þeim hörðustu frá því þeir drógu herlið sitt til baka frá Líbanon árið 2000. Í það minnsta tveir líbanskir borgarar biðu bana í loftárásunum. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, var ómyrkur í máli í yfirlýsingu sinni í dag þegar hann sagði að aðgerðirnar jafngiltu nánast stríðsyfirlýsingu.

Leiðtogi Hizbollah sagði að með gíslatökunni vildu samtökin knýja Ísraela til að láta fanga lausa úr haldi og árás þeirra tengdist ekki átökunum á Gaza-ströndinni heldur hefði hún verið lengi í bígerð. Hizbollah á sæti í líbönsku ríkisstjórninni og því kemur ekki á óvart að Ísraelar segi líbönsk stjórnvöld beri ábyrgð á árásinni. Stuðningsmenn samtakanna í Líbanon fögnuðu árásinni með því að dreifa sælgæti og sprengja flugelda en Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, var hins vegar ekki hlátur í hug þegar hann frétti af henni.

Ísraelar létu átökin fyrir norðan ekki stöðva sig í að halda uppteknum hætti á Gaza-ströndinni. Stórri sprengju var varpað á hús á svæðinu þar sem talið var að hryðjuverkamenn hefðust við. Þar var hins vegar einungis níu manna fjölskylda sem átti sér einskis ills von. Allir í húsinu biðu bana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×