Hvíti kóngurinn kom, sá og sigraði 7. apríl 2006 23:15 Snorri Snorrason.
Snorri Snorrason, 28 ára reykvíkingur var fyrir stundu kosinn Idol stjarna Íslands árið 2006. Snorri atti kapi við Ínu Valgerði Pétursdóttur, 18 ára Húsvíking og hafði betur. Alls bárust tæplega 116 þúsund atkvæði og hlaut Snorri 63.800 atkvæði eða 55%. Ína hlaut 52.200 atkvæði eða 45%. Til samanburðar má nefna að í þriggja manna úrslitunum fyrir viku bárust 67 þúsund atkvæði. Snorri og Ína hafa allt frá fyrsta úrslitaþætti staðið sig með miklum ágætum og þóttu snemma sigurstrangleg. Báðum tókst fljótt að vinna sér traust fylgi aðdáenda sem fleytti þeim alla leið í sjálf tveggja manna úrslitin. Lögin sem Snorri og Ína tóku voru þrjú talsins. Að vanda var sá háttur hafður á að þau völdu sér eitt lag, dómefndin valdi fyrir þau eitt lag og svo sungu þau bæði nýtt lag, sérstaklega samið fyrir úrslitaþáttinn. Það lag heitir "Allt sem ég á" og var samið af hinum heimskunna lagahöfundi John Reid, sem m.a. hefur samið lög fyrir Westlife, Kelly Clarkson, Tinu Turner og Rod Stewart, og Óskari Páli Sveinssyni en íslenskur texti er eftir Stefán Hilmarsson. Þetta lag verður sérstaklega gefið út að lokinni keppni; bæði með sigurvegaranum og þeim sem hafnar í öðru sæti og verður fáanlegt m.a. á tonlist.is strax að lokinni keppni. Snorri Snorri hefur notið augljósrar hylli allt frá upphafi og til marks um það hafnaði hann aðeins einu sinni í þremur af neðstu sætunum í símakosningunni. Snorri er 28 ára gamall Reykvíkingur, á konu og þrjú börn. Óhætt er að segja að "Hvíti kóngurinn" eins og hann er kallaður af stuðningsmönnum, hafi farið ótroðnar slóðir, bæði í nálgun við keppnina og lagavalið. Snorri er huldumaðurinn, sá hlédrægi; geðþekkur náungi sem minna hefur haft sig í frammi en margir aðrir keppendur í Idol-Stjörnuleit en vaxið mjög ásmeginn í keppninni. Þá hefur lagavalið hans vakið nokkra athygli fyrir að vera býsna frábrugðið því sem hefðbundið þykir í Idol-keppnum; hefur um margt verið þyngra og rokkaðra en gengur og gerist. En í gegnum lagavalið má e.t.v. best sjá hvaða mann hann hefur að geyma; því þar fer ungur maður sem er einkar samkvæmur sjálfum sér, traustur náungi, sem syngur ekki bara hvað sem er heldur fyrst og fremst það sem hann sjálfur kann að meta, eitthvað sem liggur nærri hjarta hans, eitthvað sem hann skynjar og skilur. Snorri er rokkari af guðs náð, hefur mestar mætur á rokkgoðunum Robert Plant og Axl Rose, nokkuð sem endurspeglast sannarlega í söngstíl hans og tónlistarvali; um leið og honum hefur sannarlega tekist að skap sér sinn eigin stíl. Lögin sem Snorri hefur sungið 35 manna úrslit - "Can't Try Hard Enough" (Williams Brothers) 12 manna úrslit - "Fuzzy" (Grant Lee Buffalo) 11 manna úrslit - "The Weight (The Band) 10 manna úrslit - "Give A Little Bit" (Supertramp) 9 manna úrslit - "You To Me Are Everything" (The Real Thing) 8 manna úrslit - "Dagný" (Vilhjálmur og Ellý Vilhjálms) 7 manna úrslit - "Sunny Afternoon" (Kinks) 6 manna úrslit - "Fly Me To The Moon" (Frank Sinatra) 5 manna úrslit - "Skýið" (Björgvin Halldórsson) 4 manna úrslit - "Sweet Child O'Mine (Guns'N'Roses) og Annie's Song (John Denver) 3 manna úrslit - "Wake Me Up When September Ends" (Green Day) og "You Raise Me Up" (Westlife) Úrslitaþáttur: - Feel - Robbie Williams - He Ain't Heavy, He's My Brother - Hollies - Allt sem ég á Ína Valgerður Pétursdóttir Ína Valgerður er sannarlega einhver mesta uppgötvun sem gerðu hefur verið í íslenskri tónlist í lengri tíma. Þessi þróttmikla og glaðværa Húsavíkurmær er einungis 18 ára gömul og af því má ljóst vera að hún er nú þegar og án allra tvímæla orðin ein efnilegasta söngkona þjóðarinnar. Til marks um ótrúlegan vöxt í keppninni og skjótan þroska þá voru þeir eflaust ekki margir sem spáðu því í upphafi úrslitakeppninnar að þessi kornunga stúlka ætti eftir að syngja sig alla leið í sjálfan úrslitaþáttinn. En þá þegar í fyrsta úrslitaþættinum varð ljóst að þar fór söngkona með geysikröftuga rödd og rann það ekki hvað síst upp fyrir mönnum með öðrum og þriðja úrslitaþættinum er hún fór létt með að syngja lög tveggja af mestu söngkonum sögunnar; Janis Joplin og Whitney Houston. Og hún gerði sér lítið fyrir og fetaði í fótspor fleiri söngdíva í næstu þáttum; Gloria Gaynor, Ellý Vilhjálms og Dusty Springfield. Það var einmitt þá, þegar Ína söng "You Don't Have To Say You Love Me" í Bresku-poppbylgjuþættinum, að Páll Óskar spurði agndofa og fullur aðdáunar sjálfan sig, Ínu, dómnefndina og þjóðina alla hvort það væri einhver tegund tónlistar sem þessi stelpa gæti EKKI sungið! Og Einar Bárðar lagði þá til að hún drægi sig einfaldlega í hlé og kæmi aftur til leiks í úrslitaþættinum. Og það hefði hún hæglega getað gert, því hún fór alla leið í úrslitaþáttinn. Þó hún hafi lotið í lægra haldi fyrir Snorra íkvöld er ljóst að hún hefur ekki sungið sitt síðasta. Lögin sem Ína hefur sungið 35 manna úrslit: "Listen to your heart" (Roxette) 12 manna úrslit - "A Moment Like This" (Kelly Clarkson) 11. manna úrslit - "Move Over" (Janis Joplin) 10 manna úrslit - "One Moment in Time" (Whitney Houston) 9 manna úrslit "I Will Survive" (Gloria Gaynor) 8 manna úrslit - "Heyr mína bæn" Ellý Vilhjálms 7. manna úrslit - "You Don't Have To Say You Love Me" (Dusty Springfield) 6 manna úrslit - "Orange Coloured Sky" (Nat King Cole) 5 manna úrslit - "Ferjumaðurinn" (Mannakorn) 4 manna úrslit - "I Want To Dance With Somebody" (Whitney Houston) og "Something To Talk About" (Bonnie Raett) 3 manna úrslit - "Since You've Been Gone" (Kelly Clarkson) og "Speed of Sound" (Coldplay). Úrslitaþáttur: - Because You Loved Me - Celine Dion - Piece of My Heart - Janis Joplin - Allt sem ég á
Idol Mest lesið Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Umboðsmaður Jenner lést af slysförum Lífið Staðfesta sambandsslitin Lífið Rósa og Hersir orðin foreldrar Lífið „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Lífið Mun aldrei líta á ástina sem sjálfsagða Makamál Fleiri fréttir Aron og Lára búin að eiga Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Umboðsmaður Jenner lést af slysförum „Þvílíkur fílingur bara“ „Ég fæ alltaf gæsahúð af góðum texta“ Rósa og Hersir orðin foreldrar Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára „Fólk sleppur ekkert auðveldlega frá mér“ Staðfesta sambandsslitin Ætla að synda frá Elliðaey til Heimaeyjar Michael Madsen er látinn Kvenorkan tók yfir á Garðatorgi Björt og Fannar selja einbýlishús fyrir 90 milljónir Anna Guðný fann ástina í faðmi kraflyftingamanns Lykla-Pétur fauk á haf út Sigraðist á krabba og komst að óléttu samdægurs Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Of Monsters and Men gefa út nýtt lag Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Fyrst skíði og nú golf Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén „Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Sjá meira