Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fella niður takmarkanir á frjálsri för launafólks frá átta Austur-Evrópuríkjum sem fengu aðild að Evrópusambandinu 1. maí 2004.
Íbúar þessara ríkja njóta því sömu atvinnuréttinda hér og aðrir íbúar ríkja á evrópska efnahagssvæðinu. Vinnuveitendum ber þó að tilkynna ráðningu fólks frá þessum ríkjum til Vinnumálastofnunar.