Kokteilsósubað og lundadiskódans 10. mars 2006 22:45
Sumar konur eru sjúkar í súrar gúrkur, aðrar hafa unun af því að fara í kokteilsósubað. Lundar geta líka dansað diskó og múmíur byggt sér kofa. Í Nýlistasafni Íslands í kvöld var hægt berja augum ýmislegt sem sjaldnast birtist almenningi. Það voru nemendur Listaháskóla Íslands sem buðu upp á gjörning í Nýlistasafninu og þar kenndi ýmissa grasa.Á einum stað var kona að spila á streng á meðan að önnur lá á gólfinu og engdist um. Þar gaf einnig að líta múmíu sem einhverra hluta vegna þurfti á gasgrímu að halda á meðan hún byggði sér bústað. Í herbergi inn af salnum mátti sjá annars konar gjörning það er að segja hann var ekki lifandi heldur annars vegar var honum varpað á vegg og hins vegar mátti horfa á einn á sjónvarpsskjá sem komið hafði verið fyrir í lofti herbergisins. Á borði inn í sal voru fjórar ungar konur sem lýstu yfir löngun sinni í súrar gúrkur og að þeim gjörningi loknum fór stúlka ein í bað sem var óvenjulegt fyrir þær sakir að það var kokteilsósubað. Á meðan gæddi hún og vinkona hennar sér á frönskum kartöflum.Maður hefði haldið að lundar hefðu ekki gaman af diskótónlist en á Nýlistasafninu mátti sjá einn sem var greinilega að fíla sig í botn.
Fréttir Innlent Lífið Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fleiri fréttir Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Sjá meira