Skoðun

Að minnsta kosti 600 milljónum hent

Nú um hátíðarnar er rétt að velta fyrir sér gríðarlegri sóun sem stjórnvöld standa fyrir á sama tíma og fjöldi fólks stendur í biðröðum eftir mat og glaðningi, s.s. hjá Fjölskylduhjálp Íslands.

Niðurstaða rannsóknar Hafró gefur til kynna að tæplega 7.500 tonnum af ýsu og þorski sé hent í sjóinn á Íslandsmiðum á árinu 2005. Ég tek þessum niðurstöðum með miklum fyrirvara þar sem ekki er um að ræða neinar beinar mælingar heldur einungis samanburð á samsetningu á lönduðum afla annars vegar og samsetningu á mældum afla í veiðiferðum hins vegar. Ef samsetning var mjög ólík var gert ráð fyrir að um brottkast hefði verið að ræða.

Almennt má gera ráð fyrir að minni fiski sé frekar hent en stærri og þess vegna sé rétt að reikna út virði aflans sem hent er út frá verðlagningu á undirmáli á fiskmörkuðum. Útreikningar út frá niðurstöðum Hafró og meðalverði Íslandsmarkaðar á árinu 2005 gefa til kynna að um 600 milljónum króna sé í bókstaflegri merkingu kastað á glæ.

Gera má ráð fyrir því að þjóðarbúið sé að verða af tvöfalt hærri upphæð þar sem að við meðhöndlun og vinnslu verður umtalsverður virðisauki.

Þessi rannsókn Hafró gefur ótvírætt til kynna að brottkast fari fram og margir telja að um mjög varlega áætlun sé að ræða. Stjórnvöld bera fyrst og fremst ábyrgð á þessari sóun þar sem aflamarkskerfið hvetur beinlínis til þess að minni fiski sé hent og sérstaklega þegar leiga aflaheimilda er hærri en sem nemur verðmæti landaðs undirmálsafla.

Í stað þess að breyta kerfinu í átt til meira réttlætis og minnka hvata til brottkasts hefur Sjálfstæðisflokkurinn farið þveröfuga leið. Í fyrsta lagi hafði Sjálfstæðisflokkurinn forgöngu um að leggja af sóknarmarkskerfi sem minnstu trillurnar voru í og setja þær inn í alræmt aflamarkskerfi. Það var gert þrátt fyrir að reynsla Færeyinga sýndi að ekkert brottkast færi fram ef veiðum væri stjórnað með sóknarmarkskerfi.

Í öðru lagi hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft forgöngu um að koma á gríðarlega kostnaðarsömu opinberu eftirliti með óréttlátu og árangurslausu fiskveiðistjórnarkerfi og er kostnaðurinn við að hafa eftirlit með sjómönnum vel á annan milljarð króna árlega.

Frjálslyndi flokkurinn hefur ítrekað lagt fram leiðir til þess að koma á árangursríkari og réttlátari stjórnun á fiskveiðum landsmanna og taka í burtu alla hvata til brottkasts með því að koma á sóknardagakerfi.

Núverandi kerfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur beðið skipbrot þar sem það hvetur til sóunar og byggðaflótta og það er löngu orðið tímabært að það verði tekið til rækilegrar endurskoðunar. 




Skoðun

Sjá meira


×