Gullborg Binna í Gröf rifin 17. nóvember 2006 07:30 Gullborgin í Daníelsslippi Hópur manna vinnur að því að bjarga þessu fengsæla skipi, Binna í Gröf, frá niðurrifi. fréttablaðið/anton brink
Hið sögufræga skip Gullborgin verður að öllu óbreyttu rifið á næstu dögum, segir Gunnar Richter, eigandi Daníelsslipps í Reykjavíkurhöfn. Gullborgin hefur staðið afskipt í slippnum frá því í byrjun ágúst í fyrra. Gunnar á í viðræðum við yfirmenn Faxaflóahafna um hvenær Gullborgin verður rifin. Hann segir að ef af því verði muni beltagrafa mola hana niður. Gullborgin er þekkt fyrir að hafa verið mesta happaskip hins þekkta skipstjóra Binna í Gröf úr Vestmannaeyjum, sem varð aflakóngur í Eyjum sex vertíðir í röð eftir að hann tók við formennsku á skipinu árið 1954. Árni Johnsen, Eyjamaður og fyrrverandi þingmaður, vinnur nú að því ásamt hópi manna, undir forustu Gunnars Marels Eggertssonar skipstjóra, að bjarga Gullborginni frá því að lenda á haugunum. Árni segir að það væri synd ef skipið yrði rifið því það sé sögufrægt og eitt fengsælasta skip Íslandssögunnar. Að sögn Árna hefur hópurinn sett sig í samband við yfirmenn hjá Faxaflóahöfnum sem einnig vilja bjarga Gullborginni. Árni segir að ef þeim tekst að bjarga skipinu verði það flutt til Reykjanesbæjar þar sem það verður gert upp. Það skýrist endanlega í næstu viku hvort skipið verður rifið eða ekki, segir Árni.
Innlent Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Sjá meira