Þjóð í hlekkjum hugarfarsins 16. nóvember 2006 16:45 Myrkvahöfðinginn eftir hrafn gunnlaugsson Kvikmynd Hrafn var undir sterkum áhrifum frá sýn Baldurs á sögu Íslands.
Kvikmyndaklúbburinn Kviksaga sem starfar innan Reykjavíkurakademíunnar sýnir í kvöld fyrsta þáttinn og brot úr seinni þáttunum þremur af leikinni heimildamynd, Þjóð í hlekkjum hugarfarsins, eftir Baldur Hermannsson. Jón Þór Pétursson sagnfræðingur mun jafnframt fjalla um efni þáttaraðarinnar og viðbrögð við henni. Röðin var sýnd í Ríkissjónvarpinu vorið 1993 og var í fjórum þáttum. Eðlisfræðingurinn Baldur Hermannsson, sem þá var aðstoðardagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins, hafði fengið veglegan styrk frá Menningarsjóði útvarpsstöðva til að framleiða þáttaröðina Þjóð í hlekkjum hugarfarsins. Efnistök og túlkun Baldurs sætti næstu vikur miklum mótmælum en lýsingar hans á sveitalífi til forna voru miskunnarlausar og þótti mörgum hann ganga fulllangt í meðferð á staðreyndum og gögnum. „Höfundur dró ekkert undan og mismunandi aðstæðum hópa í gamla íslenska bændasamfélaginu voru gerð miskunnarlaus skil,“ segir í tilkynningu Kviksögu. Þá voru kvikmyndagerðarmenn gagnrýnir á hvað aðstoðardagskrárstjórinn hafði fengið til framleiðslu þáttanna og töldu hann sitja beggja megin borðsins um kaup á þeim. Sýningin í kvöld hefst kl. 20 og verður á fjórðu hæð á Hringbraut 121.
Menning Mest lesið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Allir héldu Michelin-stjörnunni Lífið „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Tíska og hönnun Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Lífið Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Lífið Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira