Toyota stefnir á stærri hlutdeild 15. nóvember 2006 09:45 Toyota Corolla. Toyota stefnir að því að auka markaðshlutdeild sína um fjögur prósentustig á næstu fjórum árum og verða stærsti bílaframleiðandi í heimi.
Japanski bílaframleiðandinn Toyota, sem er næststærsti bílaframleiðandi í heimi, ætlar að spýta í lófana á næstu árum. Markmiðið er að reisa meðal annars verksmiðjur í Bandaríkjunum, á Indlandi og í Kína og ná fimmtán prósenta markaðshlutdeild á heimsvísu á næstu fjórum árum. Toyota seldi 65 milljónir nýrra bíla á síðasta ári, undir eigin merkjum, Daihatsu og Hino Motors, sem tilheyra dótturfélögum. Stefnt er að því að auka söluna um tólf prósent á næstu fjórum árum og selja allt að 73 milljónir bíla. Þá er sömuleiðis horft til þess að sala á bílum undir merkjum Toyota aukist um fjórtán prósent á sama tíma en fyrirtækið seldi rúmar 7,2 milljónir bíla á síðasta ári, sem jafngildir ellefu prósenta markaðshlutdeild á heimsvísu. Toyota horfir til þess að auka sölu á nýjum bílum, mest í Brasilíu, Rússlandi, Indlandi og í Kína, samkvæmt upplýsingum frá stjórn japanska bílaframleiðandans. Fyrirtækið hefur verið á góðu skriði síðastliðin ár en búist er við að Toyota fari fram úr bandarísku bílasmiðunum hjá General Motors við árslok. Gangi það eftir verður Toyota stærsti bílaframleiðandi í heimi.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira