Kemur ekki til greina að fara 22. október 2006 09:00 George Bush Segir hryðjuverkamönnum veitt öruggt athvarf til þess að skipuleggja hryðjuverkaárásir gegn Bandaríkjamönnum yfirgefi bandaríski herinn Írak.
George Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í vikulegu útvarpsávarpi sínu í gær að ekki kæmi til greina að kalla bandaríska herliðið heim frá Írak. Með því að hörfa á brott væri hryðjuverkamönnum veitt öruggt athvarf þar sem þeir gætu skipulagt árásir á Bandaríkin. Einnig væri minning þeirra sem látist hafa í stríðinu vanvirt ef herliðið væri kallað til baka, með því væri fórn þeirra höfð að engu. Hann sagði síðustu vikur hafa verið sérstaklega erfiðar herliði Bandaríkjamanna í Írak sem og lögregluliði heimamanna, en mikilvægt sé að missa ekki sjónar á lokatakmarkinu sem væri sigur. Forsetinn fundaði með helstu sérfræðingum sínum í hernaðarmálum í gær varðandi stöðuna í Írak. Ofbeldi hélt áfram í Írak í gær. Að minnsta kosti átján létust í sprengjuárás á markað sunnan við Bagdad. Herskáir sjíar gerðu einnig árás á lögreglustöð í nágrenni Bagdad þar sem átta létust. Þrír bandarískir hermenn létu lífið í árás uppreisnarmanna í al-Anbar héraði. Októbermánuður hefur verið einn sá blóðugasti í Írak síðan innrás Bandaríkjamanna hófst fyrir rúmum þremur árum.
Erlent Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Sjá meira