Talin vera 24.000 ára gömul 18. september 2006 05:00 Neanderdalsmaður. Talið er að Neanderdalsmenn hafi litið svona út.
Neanderdalsmenn lifðu þúsund árum lengur en áður var talið, að því er fram kemur í nýrri rannsókn sem gerð var í Gíbraltar á Suður-Spáni. Fjallað er um niðurstöðurnar í nýjasta töluhefti vísindatímaritsins Nature. Litlir hópar Neanderdalsmanna flökkuðu um Gíbraltar og gistu reglulega í stórum helli þar fyrir 28.000 árum, og gætu yngstu ummerkin um þá verið 24.000 ára gömul, að sögn Clive Finlayson frá Gíbraltarsafninu. Kannski voru þetta hinir síðustu, sagði Finleyson. Neanderdalsmenn voru litlir, vöðvamiklir veiðimenn sem fyrst komu fram í Evrópu og Vestur-Asíu fyrir um 200.000 árum. Þeir dóu út eftir að nútímamaðurinn flutti sig til Evrópu fyrir um 35.000 til 40.000 árum. Vísindamenn hafa mikið velt fyrir sér örlögum Neanderdalsmanna og enn er deilt um ástæðu þess að þeir urðu útdauðir. Helstu kenningarnar eru að þeir hafi ekki staðist samkeppnina við nútímamenn, nútímamaðurinn hafi smita þá af sjúkdómi sem dró þá alla til dauða eða að loftlagsbreytingar hafi orðið þeim aldurtila. Aðrir vísindamenn, sem ekki tóku þátt í rannsókninni, segjast efast um áreiðanleika dagsetninga Finlaysons og félaga, en telja þó ummerkin um Neanderdalsmennina afar merk.
Erlent Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira