Talar frjálslega um peningamál leikmanna Valsliðsins 13. september 2006 00:01 Hér sést hluti af svari Rieg til Arnar Franzsonar, föðurs Ernis Arnarsonar. Stór hluti þessa svars er í greininni sem fylgir þessari mynd.
Á heimasíðu Vals má enn finna nokkur bréf skrifuð af Rieg og Fréttablaðið hefur einnig undir höndum spjallþráð sem hefur verið eytt af síðunni en í honum fer Rieg mikinn. Við skulum byrja á að draga út nokkur ummæli í þræðinum sem var eytt en Rieg stofnaði hann 23. maí 2006, skömmu eftir að Ernir Hrafn Arnarsson hafði gengið í raðir Vals. Fram var eitt þeirra liða sem vildi fá Ernir í sínar raðir. Nú frétti ég að stjórnin bauð honum (Erni, innsk., blm) gull og græna skóga á sama tíma og okkar efnilegustu strákar spila nánast fyrir skóna og smánarlegan bónus. Hvað er verið að meina með þessu að borga Erni rúmlega þrisvar sinnum meira en Fannar og Elvar fá samtals. Þetta kalla ég ekki að fá til liðsins menn á réttum forsendum. Svo er algert lágmark að standa í skilum við þá leikmenn sem eru hjá okkur áðuren stórir samningar eru gerðir við unglinga. [...] Ég tel þetta ekki rétta vettvanginn til að nefna tölur nákvæmlega en þetta er alveg pottþétt svona. Ernir var í viðræðum við Stjörnuna og faðir hans gaf sterklega til kynna hvað hann fengi hjá Val og meira að segja Stjörnumönnum þótti það mikið. Ég veit alveg hvað Fannar, Elvar og Ingvar eru að fá og það er í engum tengslum við þetta [...] það er skandall hvernig stjórnin hefur komið fra við Loutoufi og það er líka skandall hve seint og illa vissum leikmönnum hefur verið greitt. Svo eru menn bara með stæla þegar núverandi leikmenn vilja fá smá hækkun. [...] það er annað sem gerir mig ósáttann. Hvernig Óskar Bjarni kom fram í Fréttablaðinu þegar tilkynnt var um Erni. Af ummælum Óskars að dæma hefur hann mun meiri trú á þessum Erni heldur en okkar strákum, sem ég tel að séu meira efni ef eitthvað er. Enda kemur þetta fram í samningnum sem stjórnin gerir við Erni sem er margfaldur á við aðra samninga við stráka af svipuðu reyki. Þegar þarna er komið við sögu stígur Örn Franzson, faðir Ernis Hrafns, inn í umræðuna og útskýrir sína hlið mála þó honum sé það ekki að skapi þar sem ásakanirnar komi frá manni sem þori ekki að koma fram undir nafni. Rieg var fljótur til svars. Ég fer ekki ofan af því að samningurinn hans Ernis er miklu hærri en hjá öðrum leikmönnum Vals á svipuðum aldri. [...] svo er það alveg óþolandi að í hvert skipti sem einhver Valsmaður gagnrýnir stjórn félagsins þá er hann orðinn óvinur. [...] ég get engann veginn sætt mig við að vel menntaður maður eins og þú (Örn Franzson., innsk. blm) skulir skrifa á spjall okkar Valsmanna og efast um heilindi mín sem Valsmanns [....] byrjaði nú á að ganga í Val og segja af þér sem fjölmiðlafulltrúi Aftureldingar áður en þú kemur á þetta spjall og hraunar yfir menn sem hafa stutt Val í gegn súrt og sætt og það án þess að sonur þeirra sé að fá milljónir í laun (á samningstímanum). [...] virðingarfyllst, RIEG, stuðningsmaður Vals síðan 1981. Rieg tjáir sig einnig á spjallsíðu Vals þegar Baldvin Þorsteinsson hafði framlengt samning sinn við Valsmenn. Mér finnst nú samt skrítið að þessi afkomandi kvótagreifa númer 1 skuli þurfa að fá borgað frá klúbbi sem veltir minna á ári en fyrirtæki pabba hans fyrir hádegi á einum góðum degi. Mér bara finnst þetta og tel að við hefðum ekki átt að láta það eftir Óskari að sleikja upp sloslóðann eftir hann Baldvin til að fá hann til baka. Við höfum helling af ungum ferskum rétthentum Valsmönnum sem hafa vanist því að vinna fyrir hlutunum innan sem utan vallar. - hbg
Íslenski handboltinn Innlendar Íþróttir Olís-deild karla Mest lesið Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Handbolti Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Aldrei hlegið jafnmikið og við að horfa á Nablann Körfubolti „Sumir ungir þjálfarar nú til dags eru hrokafullir“ Enski boltinn „Hræddir erum við ekki“ Sport Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sport Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Íslenski boltinn EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti „Örugglega orðinn hundleiður á umræðunni“ Handbolti Fleiri fréttir „Besta íslenska landslið sem við höfum mætt“ „Sáru töpin sitja í okkur“ „Örugglega orðinn hundleiður á umræðunni“ „Það er mjög slæm minning“ Knorr lofaði Alfreð: Enginn egóisti og róaði okkur Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða „Það trompast allt þarna“ Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Austurríkismenn hjálpuðu Alfreð Dagur fagnaði sigri á móti Faxa EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði „Lífshættulegt“ gólf losnaði í einni af EM-höllunum Einar í ræktina en fær ekki að æfa með hópnum Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Íslendingar ættu frekar að vera hræddir „Elvar og Ýmir voru rosalegir“ Úthúðuðu Alfreð og starfið talið í húfi í kvöld Miðar á milliriðil Íslands rjúka út: „Mikilvægt að tryggja sér miða strax“ Skýrsla Vals: Haukur í horni Gefur Snorra toppeinkunn: „Gríðarleg pressa á honum“ Sigur Ungverja stillir upp úrslitaleik við Ísland um toppsætið EM í dag: Stóra Hauks Þrastar leiknum fagnað með pylsuveislu Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Eiga vart orð yfir mögnuðum árangri Færeyja: „Algjörlega einstakt“ Snorri eftir stórsigur: „Í þessari stemningu og höll þarf ég ekki að segja mikið“ „Er í góðu standi og klár í hvað sem er“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Póllandi: Velkominn Haukur og Ýmir í vígahug Tölfræðin á móti Póllandi: Gísli með ellefu stoðsendingar Elliði svaraði fyrir slæman leik: „Skiptir meira máli að vinna en að ég spili vel“ Sjá meira