Ekki þjóðinni til framdráttar 7. september 2006 06:30 Tony Blair Þrýst á forsætisráðherrann að hann segi af sér, eða í það minnsta tilkynni um hvenær hann ætli að hætta. MYND/NORDICPHOTOS/AFP
Sjö embættismenn ríkisstjórnar Tony Blairs sögðu upp störfum í gær í mótmælaskyni við tregðu hans við að tilkynna hvenær hann ætli að láta af embætti. Einn embættismannanna er Tom Watson, en hann var meðal undirritaðra á hvatningarskjali sem lekið var til fjölmiðla í fyrradag. Á skjalið settu 38 þingmenn Verkamannaflokksins nafn sitt undir beiðni til Blairs um að segja af sér, fyrr en seinna. „Ég tel ekki lengur að áframhaldandi seta þín í embætti sé flokknum eða landinu til framdráttar,“ sagði Watson í uppsagnarbréfi sínu í gær. Blair sagði seinna að hann hefði rekið Watson sjálfur, ef aðstoðarráðherrann hefði ekki verið fyrri til að segja af sér, enda hefði ákvörðun Watsons um að skrifa undir verið „sviksamleg og ósvífin“. Miklar vangaveltur eru uppi í Bretlandi um hvenær Blair tilkynni um afsögn sína og í gær birti til dæmis dagblaðið Sun frétt þess efnis að forsætisráðherrann myndi segja af sér þann 31. maí, en blaðið gat ekki um heimildir og skrifstofa forsætisráðuneytisins vildi ekkert um fréttina segja. Tony Blair lýsti því yfir í kosningabaráttunni síðustu að hann myndi ekki sækjast eftir endurkjöri árið 2009, heldur segja af sér á kjörtímabilinu. Hann kvað þó ekki fastar að orði en svo að segja að eftirmaður sinn fengi „tíma“ til að koma sér fyrir í embætti.
Erlent Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira