Heilbrigðisráðherra segi af sér 7. september 2006 07:00 Thabo Mbeki Forseti Suður-Afríku fékk bréf í gær þar sem stefna stjórnarinnar er fordæmd. MYND/AP
Yfir 80 alþjóðlegir vísindamenn og háskólaprófessorar fordæmdu stefnu Suður-Afríku hvað varðar eyðni og HIV, kölluðu hana gagnlausa og ósiðlega, og fóru fram á að heilbrigðisráðherra landsins segði af sér í bréfi sem þeir sendu forseta landsins, Thabo Mbeki, í gær. Sögðu vísindamennirnir Manto Tshabalala-Msimang ráðherra vera smán fyrir landið, en hún hefur lagt til að sjúklingar borði hvítlauk, rauðrófur, sítrónur og afrískar kartöflur til að lækna eyðni. Meðal þeirra sem skrifuðu undir bréfið eru Nóbelsverðlaunahafinn David Baltimor og Robert Gallo, sem var einn þeirra sem uppgötvuðu HIV-vírusinn og hannaði fyrstu HIV-blóðprufuna. Forsetinn hefur sjálfur sagst efast um tengslin milli HIV og eyðni. Talið er að um 5,5 milljónir Suður-Afríkumanna séu smitaðir af HIV og daglega deyja yfir 900 manns úr sjúkdómnum. Ríkisstjórnin lét ekki gefa eyðnismituðum lyf fyrr en árið 2002, þegar dómstólar neyddu hana til þess.
Erlent Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira