Fjögur innbrot hafa komið til kasta lögreglunnar í Reykjavík undanfarna daga. Á miðvikudag var tilkynnt um tvö innbrot, annað á heimili í Breiðholti þar sem flatskjá var stolið og hitt í bifreið við Laugaveg. Í gær var tilkynnt um tvö innbrot til viðbótar. Hurð á veitingastað í austurbænum var sparkað upp og tuttugu þúsund krónum stolið. Þá var brotist inn á heimili við Hverfisgötu og fartölva og myndavél tekin. Ræninginn virðist hafa skorið sig og skilið eftir blóðslóð.
Allir þjófarnir eru ófundnir. Lögreglan segir innbrot ganga í bylgjum.
Ræningi skildi eftir blóðslóð
Mest lesið




Banaslys varð í Vík í Mýrdal
Innlent


Hvernig skiptast fylkingarnar?
Innlent




„Við gefumst ekki upp á ykkur“
Innlent