Erlent

Þúsundir berjast við bálið

Reykjarmökkur liggur nú yfir Yuccadalnum í Kaliforníu, þar sem skógareldar geysa, um 160 kílómetra austur af Los Angeles. Fjöldi íbúðarhúsa hefur brunnið og hundruðum manna hefur verið skipað að yfirgefa híbýli sín.

Yfir þrjú þúsund slökkviliðsmenn lögðu líf sín og limi í hættu þegar þeir börðust við eldinn við erfiðar aðstæður; miklum vindi og hita og að auki er svæðið afar erfitt yfirferðar. Þetta munu vera einhverjir mestu kjarreldar í Kaliforníu til þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×