Erlent

Heimilisstörfin lengja lífið

 Ný bandarísk rannsókn sýnir að venjuleg heimilisstörf og létt garðyrkja lengir líf fólks til muna, og engin þörf er á erfiðri líkamsrækt til að ná þeim árangri.

Þar kom fram að eldra fólk sem vaskar upp, ryksugar, sinnir garðinum og gengur upp stiga lifir að meðaltali mun lengur en hinir sem hreyfa sig sem allra minnst. Á þeim sex árum sem rannsóknin stóð yfir létust 12 prósent hinna fyrrnefndu en fjórðungur hinna síðarnefndu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×