Stressið kom upp um Litháann 14. júlí 2006 07:45 Í Héraðsdómi Reykjavíkur Litháinn sem tekinn var í Leifsstöð 4. febrúar hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan. Mál hans var tekið fyrir í héraði í fyrradag. MYND/Stefán
Kreditkortafærslur, staðsetning símtækja og úthringiupplýsingar auk augnskanna í líkamsræktarstöðinni World Class komu lögreglunni á spor Litháans, sem búsettur er hér á landi, og er ásamt öðrum ákærður fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Það var í kjölfar þess að landi hans var tekinn með tvær flöskur af fljótandi am-fetamíni í febrúar. Mennirnir eru ákærðir fyrir innflutning á amfetamínbasa, fíkniefninu í fljótandi formi, sem hægt er að breyta í 1,8 kíló af amfetamínsúlfati, eða í fast form til söludreifingar. Þeir eru taldir hafa átt vitorðsmann í Litháen. Maðurinn sem handtekinn var í Leifsstöð var stöðvaður þar sem hann þótti órólegur og stressaður. Hvítvínsflöskurnar sem hann bar í handtösku voru því skoðaðar nánar. Þrátt fyrir að flöskurnar væru hver frá sínu landinu var frágangurinn á töppunum sá sami, stúturinn steyptur aftur með vaxi. Við rannsókn lögreglu kom í ljós að hann hafði einnig komið til landsins í desember. Þá hafði sá sem ákærður er með honum borgað fyrir hann flugfarið heim í gegnum netið. Það kom lögreglunni á sporið sem og símanúmer sem einnig var skráð við söluna. Lögreglan lagði fram gögn sem sýndu staðsetningar símans til að reyna að sanna að eigandi kortsins ætti einnig óskráða símanúmerið.
Innlent Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira