Einn handtekinn 29. júní 2006 06:30 Eyðileggingin Hið fagra gullna hvolfþak moskunnar í Samarra eyðilagðist algerlega í árásinni í febrúar. MYND/AP
Írösk stjórnvöld hafa handtekið mann sem grunaður er um aðild að sprengjuárásinni á Gullnu moskuna í Samarra í febrúar. Hinn handtekni, sem er sagður vera frá Túnis, heitir Yousri Fakher Mohammed Ali en gengur einnig undir nafninu Abu Qudama. Hann er þó ekki talinn vera forsprakki árásarinnar á moskuna. Höfuðpaurinn er sagður heita Haitham Sabah Shaker Mohammed al-Badri, en hann hefur ekki verið handsamaður. Þeir Abu Qudama og al-Badri voru í hópi með tveimur Írökum og fjórum Sádi-Aröbum þegar þeir gerðu árásina á Gullnu moskuna þann 22. febrúar síðastliðinn. Þeir komu fyrir sprengjum í moskunni, sem er tólf hundruð ára gömul og einn helgasti staður sjía-múslima. Árásin vakti mikla reiði meðal sjía-múslima og brutust út harkaleg átök milli þeirra og súnní-múslima, en sjíar kenndu súnnum um árásina. Átökin stóðu vikum saman og kostuðu hundruð manna lífið. Meira en 20 þúsund fjölskyldur hröktust að heiman og tugir moskna voru eyðilagðar eða skemmdar.
Erlent Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Fleiri fréttir Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Vargöldin á Haítí versnar hratt Tryggja þróunarríkjum 42 billjónir á ári með samkomulagi á COP29 Uppnám á COP29 er fulltrúar þjóða strunsuðu út Vill einn af höfundum „Project 2025“ við stjórn fjárlagaskrifstofu Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Hakkarar komu sér fyrir í kerfum fjölda fjarskiptafyrirtækja Ákærður fyrir að nauðga og myrða þrettán ára stúlku Leita móður ungabarns sem fannst látið á víðavangi Styrkja loftvarnir Norður-Kóreu fyrir hermenn og vopn Bolsonaro og félagar kærðir fyrir valdaránstilraun Trump-liðar heita aðgerðum gegn sakamáladómstólnum Útlit fyrir að Scholz leiði flokk sinn til kosninga þrátt fyrir óvinsældir Eigandi gistiheimilis handtekinn í gengslum við metanóleitrun Kostnaðurinn við krýningu Karls konungs 13 milljarðar króna Pam Bondi kemur í stað Matt Gaetz Segir notkun eldflaugarinnar fela í sér stigmögnun átaka Bættu krakkpípu við styttu Nínu Sæmundsson í Los Angeles Gaetz ætlar sér ekki að verða dómsmálaráðherra Tóku tíu úkraínska fanga af lífi Meina fyrstu trans þingkonunni að fara á kvennaklósettið Fyrsta nærmyndin af stjörnu utan Vetrarbrautarinnar Gefa út handtökuskipun á hendur Netanjahú Fjögur ungmenni nú látin af völdum tréspírans Skutu fyrstu langdrægu skotflauginni að Úkraínu Hugmynd um banana á vegg seldist á 850 milljónir John Prescott fallinn frá Siðanefndin klofin í máli Gaetz en gögn farin að leka Sjá meira