Gunnar vill áfram vera í forystu í Kópavogi 29. desember 2005 07:45 Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi. MYND/GVA
Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hyggst sækjast eftir því að leiða áfram sjálfstæðismenn í Kópavogi í bæjarstjórnarkosningunum í vor, en prófkjör vegna kosninganna verður haldið 21. janúar. Fjórir af fimm bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins hyggjast áfram gefa kost á sér. Frestur til að skila inn framboðum fyrir prófkjör sjálfstæðismanna í Kópavogi rennur út á hádegi á morgun. Fjórir af fimm bæjarfulltrúum flokksins staðfestu við fréttastofu NFS að þeir hygðust áfram gefa kost á sér. Auk Gunnars eru það Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, sem segist ætlað að verja annað sætið sem hann tryggði sér í síðasta prófkjöri, Gunnsteinn Sigurðsson, sem varð í þriðja sæti og Sigurrós Þorgrímsdóttir sem varð í fjórða sæti. Hvorki Gunnsteinn né Sigurrós vildu gefa upp á hvaða sæti þau stefndu en Sigurrós sagði þó að hún stefndi ofar á listann. Hins vegar hefur Halla Halldórsdóttir ákveðið að gefa ekki kost á sér aftur i bæjarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Gunnar Birgisson hefur verið í leyfi frá Alþingi í vetur vegna bæjarstjórastarfsins. Hann segir aðspurður að prófkjörið og kosningarnar í vor verði að leiða í ljós hvort hann hverfi aftur til starfa á þingi næsta haust eða hvort hann verði áfram í bæjarstjórnarstólnum. Of snemmt sé að spá nokkru um það.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Innlent Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Innlent Boða til upplýsingafundar um landamærin Innlent Leita óprúttins aðila sem kveikti í kjörkössum Erlent Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Innlent Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Innlent Segja loftslagsráðstefnurnar ekki lengur þjóna tilgangi sínum Erlent Musk sagður hafa átt fund með sendiherra Íran Erlent Fleiri fréttir Boða til upplýsingafundar um landamærin Óvissustig á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði Skyndileg krafa upp á milljónir króna eins og lélegt grín Rannsaka hópárás á tvo einstaklinga Fólk velji frekar Sósíalista því VG hafi stungið kjósendur í bakið Fjárlaganefnd gefur grænt ljós á útboð á Vestfjörðum Sýkna í málinu sem setti svip sinn á forsetakosningarnar Sextán flugferðum aflýst Konan er fundin Þórður Snær afboðaði komu sína Hitamet féll Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Málaferlin auki gildi verksins og hann sé hvergi af baki dottinn Bein útsending: Utanríkisstefna á umbrotatímum Refsing milduð í stóra skútumálinu Sósíalistar færu ekki í stjórn sem ætlaði að selja Íslandsbanka Hugmyndir Ingu séu aðför að kjörum alls vinnandi fólks Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Einkavæðing í heilbrigðiskerfinu: Skýr mörk á milli hægri og vinstri Lýsa eftir konu með heilabilun Samherji lagði listamanninn Odee Myndband sýnir umfang skriðanna í Eyrarhlíð Fimm sveitarstjórnarfulltrúar í Strandabyggð beðist lausnar Sósíalistar mælast inni og Vinstri græn í lífshættu Þinglok strax eftir helgina Glæný Maskínukönnun kynnt í hádegisfréttum Sammála um níkótínpúðana en ekki áfengissöluna Áfram séreign inn á lánin og ekkert kílómetragjald í bili Sjá meira