Ragnar átelur dómsmálaráðuneytið 19. maí 2005 00:01 "
Það viðhorf gagnvart umbjóðanda mínum einkennir málsmeðferð dómsmálaráðuneytisins, að hún sé með einhverjum hætti öðruvísi en annað fólk," sagði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður, sem fór með mál Lilju Sæmundsdóttur, fyrir Héraðsdómi í gær, en Lilju var synjað um að ættleiða barn frá Kína og leitar nú til dómstóla í von um að fá þeirri ákvörðun hnekkt. Hann átaldi vinnubrögð ráðneytisins og seinagang við vinnslu umsóknar Lilju. Hann sagði ráðuneytið miða allt við meðaltöl, án tillits til ákveðinna þátta. Þannig mætti upplýsa að Lilja hefði lagt fram mælingu Hjartaverndar þar sem miðað væri við þyngd hennar, aldur, blóðþrýsting og fleira. Útkoman hefði verið sú að 1,45 prósent líkur væru á því að hún fengi kransæðasjúkdóm á næstu tíu árum. Sömu mælingar hefðu verið settar inn í líkan þar sem líkamsþyngdin hefði verið 30 kílóum minni . Þá hefðu líkurnar verið 1,38 prósent. Mismunurinn hefði verið 0,07 prósent. Ragnar krafðist þess að úrskurður ráðuneytisins yrði felldur úr gildi og viðurkennt yrði fyrir dómi að Lilja uppfyllti öll skilyrði til að ættleiða barn frá útlöndum. Verjandi ríkisins, Sigurður Gísli Gíslason, héraðsdómslögmaður, krafðist þess það yrði sýknað af öllum kröfum.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira