Tvær konur létust í árekstri 16. maí 2005 00:01
Tvær konur létust í árekstri jeppa og fólksbíls í Öxnadal í Hörgárbyggð um klukkan hálf sex á föstudag. Önnur konan ók fólksbílnum og var ein í honum, en hin var farþegi í jeppanum. Ökumaður jeppans var fluttur á slysadeild, en er ekki talinn í lífshættu. Slysið átti sér stað um einn kílómetra sunnan við bæinn Syðri-Bægisá í Öxnadal. Loka varð veginum í rúmar þrjár klukkustundir vegna árekstursins, eða til um klukkan níu á föstudagskvöldið. Jeppinn var á leið til Akureyrar, en fólksbíllinn á suðurleið. Þá lenti þriðji bíllinn aftan á jeppanum eftir áreksturinn og endaði út fyrir veg, en skemmdist ekki mikið og sakaði engan í honum. Ekki er vitað hvað varð til þess að bílarnir rákust saman, vegurinn er á þessum stað beinn og greiður og skilyrði til aksturs voru ágæt. Lögreglan á Akureyri fer með rannsókn málsins. Konurnar sem létust hétu Halldóra Árnadóttir og Edda Sólrún Einarsdóttir. Halldóra, sem var farþegi í jeppanum, var 63 ára, til heimilis að Kvistagerði 2 á Akureyri. Hún lætur eftir sig eiginmann og fjóra uppkomna syni. Edda Sólrún var 49 ára, til heimilis að Baldursgötu 10 í Reykjanesbæ. Hún lætur eftir sig tvo uppkomna syni.Halldóra ÁrnadóttirEdda Sólrún Einarsdóttir
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira