Gæsluvarðhalds krafist 16. maí 2005 00:01
Tuttugu og níu ára karlmaður lést eftir átök við annan mann í fjölbýlishúsi í Hjallahverfi í Kópavogi í gærkvöldi. Þrír menn voru handteknir í nótt en tveimur hefur nú verið sleppt. Krafist verður gæsluvarðhalds yfir hinum grunaða í dag. Tilkynning um átök í húsinu barst lögreglunni klukkan hálfellefu í gærkvöldi. Maðurinn sem lést og maðurinn sem er í haldi lögreglunnar lentu í átökum með þeim afleiðingum að hinn grunaði veitti manninum áverka á brjóstholi sem drógu hann til dauða. Báðir mennirnir voru gestkomendur í íbúðinni en þeir eru af erlendu bergi brotnir og búsettir hér á landi. Fleira fólk var í íbúðinni. Annar maður, sem var í samkvæminu, þurfti að gangast undir aðgerð vegna áverka sem hann hlaut þegar hann reyndi að stöðva átökin. Hann mun ekki vera í lífshættu. Lögreglan í Kópavogi verst allra frétta af málinu en í fréttatilkynningu frá lögreglunni segir að áfengi hafi verið haft um hönd í íbúðinni. Samkvæmið var haldið á efstu hæð fjölbýlishússins og eru blóðslettur víða í stigaganginum og virðist því sem átökin hafi færst úr íbúðinni og út á stigaganginn. Unnið hefur verið að rannsókn málsins í allan dag og hefur hinn grunaði verið yfirheyrður í nótt og í morgun. Krafist verður gæsluvarðhalds yfir manninum í dag.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira