Gripnir fyrir akstur utan vega 5. maí 2005 00:01
Þrír mótorhjólamenn voru gripnir fyrir akstur utan vega á norðanverðu Snæfellsnesi í gærkvöldi. Lögreglumenn á eftirlitsferð veittu athygli mannlausri bifreið með eftirvagn fyrir mótorhjól við Grákúlu, sem er eldgígur skammt frá Stykkishólmi. Frá bifreiðinni lágu hjólför sem lögreglumennirnir röktu meðal annars yfir mosavaxna hraunmöl. Lögreglumennirnir biðu mótorhjólanna við bifreiðina og þangað komu nokkru síðar þrír menn á mótorhjólum. Viðurkenndu þeir á staðnum að hafa ekið mótorhjólunum utan vega og var kjölfarið farið með þá á lögreglustöðina í Stykkishólmi þar sem framburður þeirra var skráður. Höfðu þeir ekið mótorhjólunum út með Seljafelli og Seljafirði, sem er ysti hluti Hraunsfjarðar, til baka fyrir norðan Seljafell yfir þjóðveginn að Kothraunsrétt og þaðan aftur yfir þjóðveginn og eftir vegum að bifreiðinni. Á þessari leið höfðu þeir ekið ýmist á vegum, utan vega og yfir þjóðveg að því er fram kemur á vef lögreglunnar. Við skoðun lögreglumannanna á mótorhjólunum kom fram að eitt þeirra var óskráð og ótryggt. Lögreglustjórinn á Snæfellsnesi fer nú yfir málið með tilliti til útgáfu ákæru á hendur mönnunum fyrir akstur utan vega.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira