Skotárás á ungan pilt við Akureyri 20. apríl 2005 00:01
Sautján ára piltur varð fyrir skotárás skammt frá Akureyri síðastliðinn laugardag. Talið er að skotið hafi verið á hann um ellefu skotum úr loftbyssu og sex skotum úr annars konar byssu. Tvær byssukúlur voru fjarlægðar úr piltinum með skurðaðgerð á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Tveir menn voru handteknir vegna málsins. Annar var úrskurðaður í fimm daga gæsluvarðhald en hinum var sleppt eftir að hafa játað sinn þátt hjá lögreglunni á Akureyri í gær. Samkvæmt framburði piltsins tóku tveir menn hann upp í bíl og óku með hann langt norður gamla Vaðlaheiðarveginn þar sem honum var sagt að fara úr bifreiðinni. Þar segir hann annan mannanna hafa dregið upp byssu og skotið á hann sex skotum. Því næst var honum skipað að afklæðast og eftir það hafi sex öðrum skotum verið skotið á hann. Pilturinn þurfti að gangast undir skurðaðgerðir daginn eftir þar sem fjarlægja þurfti úr honum tvær byssukúlur. Hann vildi í fyrstu ekki skýra frá því hverjir hefðu verið þarna að verki né hvers vegna. Vöknuðu því grunsemdir um að þarna hafi verið um afleiðingar fíkniefnaviðskipta að ræða. Í fyrradag handtók síðan lögreglan tvo menn sem grunaðir eru um verknaðinn.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira