Það er víst ekki í tísku lengur að skella sér í sundlaugina, taka sundsprett og hífa sig aftur upp úr lauginni til að fá sér drykk eða mat á barnum. Nú er málið að synda að barnum og flatmaga í sundlauginni á meðan svalandi drykkurinn er sötraður í sólinni.
Ferðasíða msn.com hefur tekið saman tíu flottustu og bestu sundlaugarbarina sem tryggja að þú þurfir aldrei að yfirgefa laugina -- að minnsta kosti ekki í löndum þar sem hitinn ræður ríkjum á næturnar.
1. Moon Palace Golf Resort í Cancún í Mexíkó.
Fjórar stjörnur
Yndislegir sundlaugarbarir sem umkringdir eru pálmatrjám og sól.
2. Barcelo Bavaro Palace Resort í Punta Cana í Dóminíska lýðveldinu.
Þrjár stjörnur
Afskaplega vel falinn staður þar sem hægt er að fá undarlegustu drykki. Þegar barþjónninn gefur þér ananas með röri í þá veistu að þú ert víðsfjarri öllu og öllum.
3. Hard Rock hótel í Las Vegas í Bandaríkjunum.
Fjórar stjörnur
Á þessum þrem sundlaugarbörum er auðvitað hægt að leggja fé undir og spila fjárhættuspil á meðan "blauti" drykkurinn er sopinn. Það er líka voða auðvelt að drekkja sorgum sínum þegar peningurinn er búinn.
4. The Ritz-Carlton í Sharm El Sheikh í Egyptalandi.
Fimm stjörnur
25 ekrur af sundlaugum, fossum og fallegum hellum.
5. Wyndham Rose Hall Resort í Rose Hall á Jamaíka.
Fjórar stjörnur
Hér er hægt að renna sér niður æsandi rennibrautir og koma niður, heill á húfi, og sötra nokkur glös af jamaísku rommi.
6. Avalon Reef Club á Isla Mujeres í Mexíkó.
Fjórar stjörnur
Þessi klúbbur er umkringdur Karabíska hafinu. Á þessum sundlaugarbar ræður þú hvort þú syndir að barnum til að fá þér hressingu eða kallar á þjónana sem koma syndandi til þín.
7. Omni Cancún hótel og smáhús í Cancún í Mexíkó.
Fjórar stjörnur
Tvær hæðir eru af sundlaugum, á annarri er sundlaugarbar, og á hinni er venjuleg sundlaug. Á þessum sundlaugarbar er meira að segja flísalagtborð í lauginni svo þú þurfir ekki að ómaka þig við að halda á glasinu þínu.
8. Negril strendur í Negril á Jamaíka.
Fjórar stjörnur
Tveir sundlaugarbarir og risastór strönd -- gerist það betra?
9. Marriott Casamagna í Puerto Vallarta í Mexíkó.
Fjórar stjörnur
Risastór sundlaug með sundlaugarbar sem selur litríka og hressandi drykki.
10. Pueblo Bonito í Mazatlán í Mexíkó.
Fjórar stjörnur
Þessi staður líkist helst stóru spænsku þorpi. Tveir sundlaugarbarir aðeins nokkrum skrefum frá ströndinni.
