Þreyttir á að horfa hver á annan hálfberan 10. desember 2004 00:01
Pottverjar í Kópavogslaug héldu sinn árlega aðventufagnað á dögunum í húsakynnum laugarinnar með sameiginlegu hlaðborði og jólasögu. Þeir hafa hist í heita pottinum í yfir 20 ár en aðventustundin er sú tíunda í röðinni. "Við vorum orðnir svolítið þreyttir á því að horfa alltaf hver á annan hálfberan þannig að við ákváðum að hittast alklæddir og fannst alskemmtilegast að gera það með þessum hætti," segir Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri sem er einn Pottverja. Hann segir harðasta kjarnann í hópnum vera svona 12- 15 manns en alltaf sé einhver hreyfing, nokkrir séu látnir sem byrjuðu en aðrir hafi komið inn. Á fyrsta aðventufagnaðinn hafi mætt 15 en nú hafi þeir verið rúmlega 40 og þar séu makarnir með. Ásgeir segir góðmetið sem lagt sé á borð tengjast uppruna ýmissa Pottverja. "Ég er til dæmis með laufabrauð frá Húsavík. Einn leggur til hangikjöt af sauðum sínum í Króksfjarðarnesi. Við höfum fengið fugl norðan úr Málmey og harðfisk líka norðan úr landi en hákarlinn frá Vopnafirði. Þannig verður úr afar þjóðleg veisla. Auk þess er einn félaganna blómaskreytir og hann prýðir jafnan borðið með jólaskreytingum." Pottverjar setja sannarlega svip á starfsemi Kópavogslaugarinnar árið um kring og á aðventunni blanda þeir saman mat, menningu og líkamsrækt.
Jól Mest lesið Danskar jólahefðir frá ömmu Ellen Jól Nótur fyrir píanó Jól Aðventuhugleiðing - Séra Þór Hauksson Jól Ó, Jesúbarn Jól Ljóðið um aðventukertin fjögur Jólin Jólasaga: Gamla jólatréð Jól Jólavættirnir Surtla og Sighvatur á vegg Safnahússins Jól Engar jólagjafir hjá Sálinni Jól Ein ómerkileg setning Jól Skata og jólakort á Þorláksmessu Jól