Innlent

Gosið virðist færast í aukana

Gosið í Grímsvötnum virðist vera að færast í aukana. Friðrik Þór Halldórsson kvikmyndatökumaður er við barm gígsins fyrir neðan Háubungu þar sem hann horfir austur yfir Grímsvötn og segir hann mikið ganga á. Gífurlegir bólstrar koma úr gígnum og segir Friðrik að miðað við þá rúmu klukkustund sem hann hafi fylgst með gosinu virðist það vera að aukast. Hann fór líka að Grímsvötnum í síðustu tveimur gosum og segir atganginn síst minni núna. Friðrik er þarna í jeppaferð en segist ekki sjá aðra á svæðinu fyrir utan tvær flugvélar sem sveimi yfir svæðinu.   Nú er hægt að fljúga til Egilsstaða en flogið eru suður fyrir Vatnajökul sem þýðir að flugtíminn er tíu til fimmtán mínútum lengri en ella. Ein vél fór fyrr í dag frá Flugfélagi Íslands til Akureyrar með austurfarþega og fóru þeir með rútu frá Akureyri. Ekki er hægt að segja til um framhaldið á flugi að sögn flugfélagsins því það fer að sjálfsögðu eftir framgangi gossins. Eldgosið sem hófst í Grímsvötnum í gærkvöldi er sunnar og vestar en hefðbundnar gosstöðvar og er íshellan þar mun þykkari. Því verður meiri bráðnun en í venjulegu Grímsvatnagosi og senmma fór að magnast hlaupið ofan til í Skeiðará. Sama er að segja um Gígjukvísl og fleiri ár. Gosið virðist í fyrstu vera talsvert öflugra en síðasta gos árið 1998 því gosstrókurinn núna náði 13 kílómetra hæð í nótt samkvæmt ratsjá Veðurstofunnar en hann náði hæst um það bil tíu kílómetra hæð fyrir sex árum. Hægt er að horfa á myndir af gosinu úr aukafréttatíma Stöðvar 2 í hádeginu með því að smella á myndhlekkinn hér að neðan. Hægt er að hlusta á Friðrik Þór Halldórsson tala frá Grímsvötnum með því að smella á hljóðhlekkinn hér að neðan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×