Standa við lokun sorpstöðvar 18. október 2004 00:01
Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað til að leysa þann ágreining sem uppi er um starfsemi Sorpstöðvar Suðurlands. Sveitarstjórn Ölfuss ætlar að standa við að láta loka stöðinni eftir um það bil viku, þann 25., og hefja innheimtu dsagsekta upp á rúmar 40 milljónir, hafi samkomulag ekki tekist fyrir þann tíma, að sögn Hjörleifs Brynjólfssonar oddvita sveitarstjórnarinnar. Deilan snýst um brot sorpstöðvarinnar á deiliskipulagi hvað varðar hæð sorpfjallsins. Niðurstaða Skipulagsstofnunar er að það sé orðið hærra en deiliskipulag geri ráð fyrir. Hjörleifur segir, að það sé orðið 3 - 7 metrum of hátt samkvæmt deiliskipulagi. Þessu hafnar stjórn sorpstöðvarinnar. "Menn hafa aðeins verið í sambandi og rætt málin, en þetta hefur ekki verið neitt formlegt," sagði Hjörleifur. "En ég trúi því að önnur aðildarsveitarfélög stöðvarinnar eigi eftir að ræða málin sín á milli." Einar Njálsson stjórnarformaður sorpstöðvarinnar vildi ekki tjá sig neitt um málið þegar eftir því var leitað.
Fréttir Innlent Sveitarstjórnarmál Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Erlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira