Ætti að fjölga í heiðursflokknum? 13. október 2004 00:01 Um langt árabil hefur Alþingi veitt útvöldum hópi listamanna sérstök heiðurslaun. Engar formlegar reglur eða viðmiðanir hafa verið til um þessa úthlutun en fyrir valinu hafa oftast orðið rosknir listamenn sem þótt hafa eiga viðurkenningu skilið fyrir framlag sitt til lista og menningar. Gangur mála hefur verið sá að menntamálanefnd Alþingis gerir tillögur í málinu og þær eru síðan teknar upp af fjárlaganefnd sem leggur þær fyrir þingið til ákvörðunar um leið og fjárlagafrumvarpið er endanlega afgreitt í desember. Vitað er að bak við tjöldin reyna hagsmunaaðilar og stjórnmálaforingjar að hafa áhrif á niðurstöðuna. Lengi vel var heiðursflokkurinn fámennur en fjölgað hefur í honum á síðustu árum. Nú eru 25 í flokknum. Fær hver þeirra 1,6 milljónir í greiðslu frá ríkissjóði árlega. Ekki eru allir núverandi heiðurslaunþegar jafn "þurfandi" ef svo má segja; sumir búa við traustan fjárhag og rífleg eftirlaun. Í því sambandi koma upp í hugann nöfn þeirra Errós og Matthíasar Johannesen fyrrum ritstjóra Morgunblaðsins. Í hópnum eru svo aðrir sem aldrei hafa efnast og njóta lágra eftirlaunagreiðslna. Peningurinn kemur sér sérstaklega vel fyrir þá.Fjárhagsstaða hafði áhrif Talið er að fjárhagsleg staða listamanna hafi stundum haft áhrif á það hvort þeir urðu fyrir valinu í heiðurslaunaflokk eða ekki. Alþingismönnum hefur þótt óviðunandi að horfa upp á þjóðþekkta listamenn, sem kannski hafa verið orðnir rosknir og hættir virkri listsköpun, búa við slæm kjör. Meginsjónarmiðið virðist þó hafa verið að heiðra listamenn fyrir framlag til menningarlífsins en ekki að hugsa um afkomu þeirra. Þess vegna hafa menn í góðum efnum, í fullu starfi og jafnvel tiltölulega ungir valist í heiðurslaunaflokkinn.Pólitík hefur alltaf spilað nokkra rullu við val heiðurslistamanna. Á tíma kalda stríðsins var þess gætt að jafnvægi væri á milli hinna "rauðu" og manna sem borgaraleg öfl höfðu velþóknun á. Þótt þessi hugmyndafræði heyri nú að mestu sögunni til örlar enn á hugsun af þessu tagi; þingmenn eru að halda fram listamönnum sem þeir hafa pólitískan áhuga á. Í fyrra urðu einnig nokkrar umræður á Alþingi og utan þess um aðferðir við val listamanna og deildi þá einn af þingmönnum Vinstri grænna harkalega á vinnubrögð stjórnarliða eins og hér má lesa. Á vefritinu Múrnum var látið að því liggja að einn nýliðinn í heiðurslaunþegaflokknum væri eingöngu í hópnum á flokkspólitískum forsendum en ekki listrænum. Sá svaraði fyrir sig og taldi ómaklega að sér vegið.Gagnrýnisraddir Um viðhorf almennings til heiðurslauna listamanna er lítið vitað; ekki er t.d. kunnugt um að spurt hafi verið um það efni í skoðanakönnunum. En segja má að þverpólitísk samstaða hafi alla tíð verið um réttmæti þessarar styrkveitingar. Það er ekki fyrr en á allra síðustu árum sem gagnrýnisraddir hafa heyrst og þá yfirleitt frá mönnum sem eru lengst til hægri í stjórnmálum eða eindregið á móti svokallaðri "ríkismenningu". Mátti lesa slík sjónarmið víða á Netinu í fyrra.Heiðurslaun fest í sessi Nú er fram komin á Alþingi tillaga til þingsályktunar frá Merði Árnasyni þingmanni Samfylkingarinnar þar sem lagt er til að heiðurslaunin verði fest í sessi með formlegri hætti en áður. Lesa má tillöguna og greinargerðina með henni í heild hér á vef Alþingis. Orðrétt hljóðar tillagan svo:Alþingi ályktar að veita skuli árlega heiðurslaun listamanna á fjárlögum. Heiðurslaunin séu að jafnaði veitt allt að fjörutíu íslenskum listamönnum hverju sinni og ekki færri en tuttugu og fimm. Sá sem hefur fengið heiðurslaun skal halda þeim ævilangt. Launin skulu að fjárhæð miðast við lífeyriskjör kennara. Menntamálanefnd geri, ef ástæða þykir til, tillögur fyrir 3. umræðu um fjárlagafrumvarp ár hvert um það hvaða listamenn bætist í þann hóp sem heiðurslaun hlýtur. Nefndin skal við það verk hafa samráð við forystumenn Bandalags íslenskra listamanna. Við tillögugerðina skal miða við að listamaðurinn hafi varið starfsævi sinni eða verulegum hluta hennar til liststarfa, að hann hafi skarað fram úr við listsköpun sína eða störf hans að listum skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóðavettvangi, og að listamaðurinn sé kominn á eftirlaunaaldur eða nálgist starfslok. Nefndin skal eftir atvikum taka tillit til skiptingar í hópi heiðurslaunamanna eftir listgreinum og kynjum.Nýmælið við tillöguna er að festa fjölda heiðurslaunamanna við ákveðið lágmark og hámark. Þá er launakjörin einnig nýmæli svo og viðmiðunin sem ráða skal vali listamannanna. Í rökstuðningi þingmannsins fyrir tillögunni segir meðal annars:Þess má vænta að samþykkt þingsályktunartillögu sem þessarar skapi meiri festu við veitingu heiðurslaunanna og dragi úr núningi og jafnvel deilum sem stundum hafa komið upp um veitinguna. Heiðurslaunin eiga að vera mikilvæg viðurkenning sem Alþingi sæmir bestu listamenn okkar fyrir hönd þjóðarinnar og er þinginu skylt að búa heiðurslaununum umgjörð sem hæfir tilgangi þeirra.Eðlilegt eða tímaskekkja? Satt að segja er ólíklegt að tillagan nái fram að ganga. Á Alþingi skiptast menn í "lið" í flestum málaflokkum og mál sem þingmenn stjórnarandstöðunnar bera fram ná sjaldnast samþykki. Þá er sennilegt - það sýnir reynslan - að ráðandi mönnum í þinginu þyki óþægilegt að láta setja sér skorður í þessum málaflokki. En sjálfsagt er að velta því fyrir sér hvort heiðurslaun listamanna séu eðlileg og réttmæt? Eða eru þau kannski tímaskekkja eftir að listamannalaun eru orðin algeng og listamenn búa við mun betri kjör en fyrr á árum? Er kannski ástæða til að ræða þetta áður en menn fara að stíga það skref að fjölga í heiðurslaunaflokknum úr 25 í 40 eins og tillaga Marðar Árnasonar opnar fyrir? Gaman væri að heyra hvað lesendum Vísis finnst um það. Hér er að neðan er hægt að smella á hnapp og skrifa skoðun sína til birtingar á vefnum. Ef eitthvað birtist sem er áhugavert munum segja frá því í Fréttablaðinu.Guðmundur Magnússon -gm@frettabladid.is Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Magnússon Í brennidepli Mest lesið Halldór 25.04.2026 Halldór Getnaðarsigur og fullnægjandi árangur María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska Skoðun Skoðun Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hverfin hverfast um íþróttafélögin Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Húsnæði er ekki lúxus – rödd ungu kynslóðarinnar Aleksandra Jania skrifar Skoðun Aftur til fortíðar – leikskólinn sem réttur eða geymsla? Kristín Dýrfjörð skrifar Skoðun Sterkari stuðningur við börn í grunnskólum Kópavogs Björg Baldursdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisþjónusta eftir póstnúmeri Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir skrifar Skoðun Ungt fólk þarf að vita hvar bjargræðin liggja Sigrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Neyðarútgangur út úr olíukreppunni Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar Skoðun Ábyrgðarmörk og vinnufriður þegar pólitík mætir fagmennsku Andrés Bertelsen skrifar Skoðun Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Læknisþjónusta á ferðalögum Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Miðflokkurinn í Kópavogi treystir konum Thelma Árnadóttir skrifar Skoðun Afnemum vaxtarmörk í Hafnarfirði - Byggjum fyrir fólkið Arnhildur Ásdís Kolbeins skrifar Skoðun Þið eruð bara eins og hlaupár Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Jafnrétti er ákvörðun Ása Björk Jónsdóttir,Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir Skoðun
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar
Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar
Skoðun Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir skrifar
Skoðun Gleðilegt sumar, Happy First Day of Summer, Wesołego pierwszego dnia lata. Þorkell Daníel Jónsson skrifar
Skoðun Í stuttu máli: Hægt er að semja við ESB um sjávarútveg (staðfest) Dagur B. Eggertsson skrifar
Við erum að missa börnin – ekki bara úr skóla heldur úr tengslum Sara Rós Kristinsdóttir,Soffía Ámundadóttir Skoðun