Björn telur sig vanhæfan 15. september 2004 00:01
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur sig vanhæfan til að skipa í embætti hæstaréttardómara sem nú er laust vegna þeirra eftirmála sem urðu þegar hann skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson dómara við réttinn í ágúst í fyrra. Það kemur í hlut Geirs H. Haarde fjármálaráðherra að taka ákvörðun um hver hlýtur embættið. Í bréfi til Davíðs Oddssonar forsætisráðherra gerir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra grein fyrir ástæðum þess að hann telji sig vanhæfan. Þar segir að meðal umsækjenda um stöðu hæstaréttardómara nú sé Hjördís Hákonardóttir dómstjóri sem einnig var meðal umsækjenda um það dómaraembætti sem Ólafi Berki Þorvaldssyni var veitt í ágúst á síðasta ári. Hjördís kærði þá skipan til kærunefndar jafnréttismála sem komst að þeirri niðustöðu að skipan menntamálaráherra hefði brotið gegn jafnréttislögum. Því var beint til dómsmálaráðherra að finna viðunandi lausn á málinu. Dómsmálaráðherra segir viðræður í því skyni hafa farið fram en sé ekki lokið. Meðan svo sé telji hann að aðrir umsækjendur megi með réttu draga í efa óhlutdrægni hans við val á umsækjendum í það embætti sem nú er laust. Að tillögu Davíðs Oddssonar forsætisráðherra hefur forseti Íslands því sett Geir H. Haarde fjármálaráðherra til að taka ákvörðun um það hver skipaður verður í embætti hæstaréttardómara, að fenginni umsögn hæstaréttar um umsækjendur.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ Innlent Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga Innlent „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Innlent Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Innlent Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Innlent Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Innlent Einar umfangsmestu loftárásir Rússa á orkuvinnviði Úkraínu Erlent Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Innlent Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir Tryggingagjald, andstæðir pólar og orkuskipti í Sprengisandi Hiti í fólki í miðbænum á kaldri sunnudagsnóttu Þúsundir hænsna drápust í bruna á eggjabúi við Voga „Hálfur millimetri í aðra hvora áttina, þá hefði hann ekki lifað af“ „Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Kveikt í uppstilltum bílflökum til að líkja eftir brotlentri flugvél Fólk ofmeti áhrif einstakra mála og frambjóðenda á kjósendur Ari Eldjárn lofar að hætta að segja „beisiklí“ Gengur upp og niður Garðskagavita í eitt ár Telur útfærslu kennara á verkföllum ekki líklega til árangurs Rýnt í ákvörðun Þórðar Snæs og kjaradeilu kennara Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá Nokkuð öflugur skjálfti í Bárðarbungu Vélsleðaslys í Langjökli Viðbrögð við ákvörðun Þórðar: „Þetta er mikil synd“ Meirihluti telur stjórnvöld gera of lítið til að draga úr losun Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi „Þessi ákvörðun var tekin að frumkvæði Þórðar“ Staðan ólík því sem sést í Bandaríkjunum enda fylgið á fleygiferð #ÉgKýs: Kosningafundur ungs fólks „Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“ Þórður Snær mun ekki taka þingsæti Ráðherra hafnar gagnrýni og óvissa um tónleika á Hvalasafninu Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi Þingmaður Pírata vill í kærunefnd útlendingamála Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu Ný geðdeildarbygging utan Hringbrautarlóðar Milljónir ekki komið til Íslands þótt þær gætu það Tók hnífinn með af því að honum fannst hann „töff“ Taldi vegið að æru sinni innan hundaræktarsamfélagsins Sjá meira