Nyr Audi 6 27. ágúst 2004 00:01
Hekla hefur hafið sölu á nýjum Audi A6 lúxusbifreiðum. Útlit bílsins byggir á hinu sígilda sportlega útliti Audi bílanna. Hann er afar rennilegur og útlínur hliða sveigjast inn á við að ofanverðu og færa bílnum öllum mjög öflugt útlit þannig að hann ber með sér kraft og snerpu. Miðhluti vélarhlífarinnar hefur verið lyft til að undirstrika vélarkraftinn og öfluga gerð hins nýja Audi A6. Heilsteypt vatnskassagrindin með nýja Audilaginu sýnir einnig að A6 er fulltrúi nýjustu kynslóðar Audibíla. Akstursljósin eru einnig gott dæmi um háþróaða tækni og A6 er fyrstur Audibíla sem hægt er að panta með sveigjanlegum akstursljósum sem leiða ökumanninn gegnum beygjur. Hægt er að velja um fimm vélar, þrjár bensínvélar og tvær dísilvélar af TDI- gerð. Bílarnir eru ýmist með framhjóladrifi eða quattro-sídrifi á öllum hjólum. Farþegar eru sérstaklega vel varðir við árekstur í þessum bíl. Skrokkurinn er mjög öflugur, búinn sérstökum krumpusvæðum og mjög stöðugum ramma. Loftpúðar eru bæði að framan og aftan auk þess sem að loftpúðar til varnar höfði eru í hliðum bílsins. Þeir tryggja öryggi bæði ökumanna og farþega og veita þeim úrvalsvörn. Audi A6 kostar frá 4.750.000 krónum.
Bílar Mest lesið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Líkindi með Grand Theft Auto og Red Dead Redemption Leikjavísir Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Lífið Fleiri fréttir Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira