Túristi í einn dag 4. ágúst 2004 00:01
Ef til vill ertu einn af þeim sem ferðast út um allt og hafa skoðað sögufræga staði erlendis og gengið um hálendi Íslands en hafa samt aldrei farið í Bláa lónið, upp í Hallgrímskirkjuturn eða séð Gullfoss og Geysi. Eða einn af þeim sem ferðast aldrei og vilja umfram allt bara vera heima hjá sér og sofa í eigin rúmi eða hafa hreinlega ekki efni, ráð og tíma til að ferðast. Hverjar svo sem ástæðurnar eru fyrir því að hafa ekki skoðað þá merkisstaði sem við lokkum ferðamenn með þá er einfalt að bæta úr því. Lítið mál er að byrja fallegan dag á því að labba að Hallgrímskirkju og horfa yfir höfuðborgina og fara svo í dagsferð með Iceland Excursions og Allrahanda um vinsælustu ferðamannastaði landsins. Úrvalið er mikið og öllum ferðum fylgir leiðsögn. Hugsanlega er hægt að klæða sig í stíl við aðra ferðamenn þannig að maður blandist í hópinn og líta svo á Ísland með augum ferðamannsins. Sagt er að glöggt sé gests augað og með augum ferðamannsins getur maður öðlast nýja sýn á land og þjóð. Golden Circle Classic Fyrst er keyrt í gegnum jarðhitasvæði og komið að Nesjavallavirkjun og þaðan keyrt að Þingvöllum og hið forna Alþingi skoðað. Haldið er áfram að Gullfossi og Geysi en svo að Skálholti. Stoppað er við Kerið þar sem kjörið er að draga upp myndavél og smella af nokkrum góðum myndum. Á leiðinni aftur til höfuðborgarinnar er komið við í Hveragerði þar sem hægt er sjá hvernig við Íslendingar höfum nýtt okkur jarðhitann til ræktunnar. Lagt er af stað kl. 8.30 og ferðin tekur níu og hálfa klukkustund. Verð: 5.900 kr. Bláa lónið og Reykjanes Ferðin hefst á baðferð í Bláa lónið þar sem hægt er að slappa vel af, maka á sig leir og fá hálsnudd á meðan legið er í vatninu. Því næst er keyrt til sjávarþorpsins Grindavíkur og haldið áfram þaðan í gegnum hraunbreiður í átt að Reykjanesvita þar sem getur að líta mikið fuglalíf í háum klettunum. Lagt er af stað kl.9 og ferðin tekur 6 klukkustundir. Verð: 4.800 kr. (innifalinn aðgangur í Bláa lónið) Suðurland og Þórsmörk Leiðin liggur yfir Hellisheiði í gegnum Selfoss, Hellu og Hvolsvöll þar sem gert er stutt stopp til að kaupa mat og aðrar birgðir. Næst er kíkt á Seljalandsfoss og gengið aftur fyrir fossinn og svo upp í rútu og haldið áfram að Steinholtsá og gengið þar inn Stakkholtsgjá. Að lokum liggur leiðin að Þórsmörk þar sem ferðamönnum gefst tækifæri til að njóta einstakrar náttúrufegurðar. Lagt er af stað kl. 8.30 og ferðin tekur 11 klukkustundir. Verð: 8.900 kr.
Ferðalög Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira