Viðskipti innlent

Tók málin í eigin hendur þegar er­lenda vinnu­aflið kom ekki

Helga Rún Jóhannsdóttir þurfti að taka málin í sínar eigin hendur þegar seinkun á afhendingu vörugáms leiddi til þess að hópur erlendra verkamanna gat ekki sett upp padelvöllinn hennar á Reyðarfirði. Hann verður sá fyrsti á Íslandi utan höfuðborgarsvæðisins. Helga starfaði áður erlendis fyrir eitt stærsta fjárfestingarfyrirtæki heims en vill núna sinna verkefnum sem þjóna betur samfélaginu.

Viðskipti innlent

Síðustu kaffi­húsum Kaffi­társ lokað

Eigendur Kaffitárs hafa ákveðið að loka kaffihúsum fyrirtækisins í Kringlunni og Háskólanum í Reykjavík, síðustu tveimur kaffihúsum Kaffitárs. Þar með lýkur 31 árs sögu kaffihúsanna en Kaffitár mun þó halda áfram kaffibrennslu og annarri starfsemi.

Viðskipti innlent

Ríkið lagði Lárus með minnsta mun

Íslenska ríkið var í morgun sýknað af öllum kröfum Lárusar Welding fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Hann vildi meina að brotið hefði verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar með skipan Hrefnu Sigríðar Briem sem sérfróðs meðdómanda í Stím-málinu svokallaða. Sjö manna dómstólinn klofnaði í málinu.

Viðskipti innlent

Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán

Bankastjóri Landsbankans segir samanlögð áhrif sértækra skatta og vaxtaleysi á bindiskyldu hjá Landsbankanum leiða til allt að 0,65 prósentustiga hærri útlánsvaxta en ella, á ári. Það jafngildi kostnaði upp á 323 þúsund krónur fyrir fimmtíu milljóna króna íbúðalán á ári. Til stendur að afla frekari viðbótartekna frá fyrirtækjum í fjármálageiranum, samkvæmt fjármálaáætlun næstu ára.

Viðskipti innlent

Tekur því að spara á verð­tryggðri bók?

64 ára karlmaður spyr: „Sæll Björn. Ef þú geymir fé á verðtryggðum bankareikningi, er þá eðlilegt að greiða fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni? Reikningseigandi er ekki að hagnast neitt á því að geyma féð, það á eingöngu að halda sínu verðgildi. Er að hugsa þetta út frá barnabörnum sem eru að byrja að spara fyrir fasteign. Get ég með góðu móti ráðlagt barnabörnunum að leggja inn á verðtryggða reikninga, ef reikningurinn heldur ekki verðgildi sínu þar sem þú greiðir 22% fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni?“

Viðskipti innlent

Sólin sest á Guide to Europe

Ferðaskrifstofunni Guide to Europe hefur verið lokað. Frá þessu er greint á vefsíðunni guidetoeurope.eu. Þar segir að eftir áralanga vegferð við að aðstoða ferðalanga við að uppgötva töfra Evrópu hafi verið tekin sú erfiða ákvörðun að loka.

Viðskipti innlent

Himneskt ei meir

Vörumerkið Himneskt hefur verið lagt niður af eiganda þess Högum. Í stað vara undir merkjum Himneskt verða seldar lífrænar vörur undir merkjum Salling Øko en Hagar gerðu nýverið samning við Salling group um sölur á þeim vörum.

Viðskipti innlent

Kaupa CCP aftur frá Kóreu

Stjórnendur íslenska fyrirtækisins CCP hafa gert samkomulag við forsvarsmenn móðurfélags þess frá Suður-Kóreu, um að kaupa fyrirtækið aftur, sex árum eftir að það var selt til Pearl Abyss. Kaupvirðið er sagt vera fimmtán milljarðar króna en fyrirtækið var á sínum tíma selt fyrir 29 milljarða.

Viðskipti innlent

Nýir eig­endur taka við svæðismiðlinum Trölla.is

Hjónin Selma Hrönn Maríudóttir og Smári Valtýr Sæbjörnsson hafa tekið við rekstri svæðismiðilsins Trölli.is. Frá því er greint í tilkynningu á vef miðilsins. Í tilkynningunni segir að þau ætli að setja fókus á afmarkaðra svæði og leggja sérstaka áherslu á lífið í Fjallabyggð og Fljótum.

Viðskipti innlent

Bensín­verð hefur lækkað

Bensínverð lækkaði í gær þegar lækkun virðisaukaskatts tók gildi. Lækkunin er ein af tímabundnum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem eiga að mæta óvissuástandi og verðhækkunum á olíu á heimsvísu. 

Viðskipti innlent

Arion banki hækkar vexti

Arion banki hefur tilkynnt að óverðtryggðir íbúðalánavextir fastir til þriggja ára hækki um 0,50 prósentustig og verði 8,75 prósent. Breytingin nái eingöngu til nýrra lána og taki gildi í dag.

Viðskipti innlent

Búast við hærri vöxtum á ó­verð­tryggðum lánum

Forsvarsmenn íslenskra banka búast við því að vextir á óverðtryggðum íbúðalánum muni hækka frekar á næstu sex mánuðum. Er það vegna væntanlegrar hækkunar meginvaxta og hærri fjármögnunarkostnaðar. Vextir á verðtryggðum lánum búast þeir við að haldist óbreyttir.

Viðskipti innlent

Sig­rún ráðin aðal­bókari

Sigrún Hallgrímsdóttir hefur verið ráðin aðalbókari Póstsins. Sigrún hlaut löggildingu til endurskoðunar árið 1998 og er með meistaragráðu frá Háskóla Íslands í fjármálum fyrirtækja.

Viðskipti innlent

At­vinnu­leysi minnkar milli mánaða

Atvinnuleysi minnkaði lítillega milli febrúar og mars en er meira en það var á sama tíma í fyrra. Í mars voru 14.700 atvinnulausir, samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum Hagstofunnar. Hlutfall atvinnulausra var því 6,3 prósent, hlutfall starfandi var 75,4 prósent og atvinnuþátttaka 80,5 prósent.

Viðskipti innlent

Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heims­vísu

Snorklferð DIVE í Silfru hefur verið valin besta upplifun ferðamanna í heiminum af notendum og starfsmönnum Tripadvisor, fyrir árið 2026. Ferðin í Silfru er í efsta sæti yfir það besta sem hægt er að gera í heiminum í árlegum verðlaunum fyrirtækisins en verðlaunin byggja á umsögnum ferðamanna.

Viðskipti innlent

Hús­næði Kjötborgar til sölu

„Tilvalið til að breyta í íbúð,“ stendur í auglýsingu fyrir húsnæði Kjötborgar sem hefur nú verið sett á sölu. Verslunarhúsnæðið er tæplega nírætt og búðin sem þar er til húsa er ein sú rótgrónasta í Reykjavík.

Viðskipti innlent

Ó­vissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfs­menn

Íslandshótel munu hefja hótelrekstur í húsnæði við Suðurlandsbraut og Nauthólsveg sem hefur hýst Hilton Reykjavík Nordica og Reykjavík Natura Hotel. Samhliða því lætur Berjaya Hotels Iceland af rekstri hótelanna en malasíska fyrirtækið keypti hann af Icelandair Group árið 2019. Stjórnendur Íslandshótela hyggjast taka yfir ráðningarsamninga starfsfólks.

Viðskipti innlent

Telur enn að stýri­vextir verði hækkaðir

Verðbólga hjaðnaði um 0,2 prósentustig milli mánaða og mælist nú 5,2 prósent. Hagfræðingur Íslandsbanka segir jákvæð teikn á lofti en telur litlar líkur á að mælingin verði til þess að Seðlabankinn hækki ekki stýrivexti í næsta mánuði. 

Viðskipti innlent

Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni

Ragnar Þór Jónsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Öryggismiðstöðvarinnar undanfarin tuttugu ár, hefur óskað eftir því að láta af störfum. Ragnar Þór mun áfram koma að starfsemi félagsins með virkum hætti og taka sæti i stjórn þess á næsta aðalfundi. Edda Rut Björnsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar.

Viðskipti innlent

Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs

Brunnur Ventures eflir fjárfestingateymi sitt með þremur nýjum ráðningum í kjölfar stofnunar Brunns III, nýs 7,1 milljarða króna vísisjóðs. Brunnur rekur jafnframt sjóðina Brunn I og Brunn II og stýrir þannig þremur vísisjóðum sem nema samtals yfir 20 milljörðum króna.

Viðskipti innlent

Verð­bólga hjaðnar

Verðbólga í apríl mældist 5,2 prósent eftir að hafa mælst 5,4 prósent í mars. Mælingin nú er sú síðasta fyrir næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans, sem er eftir fjórar vikur.

Viðskipti innlent