Viðskipti innlent

Verðbólga hjaðnar um 0,1 prósentustig
Vísitala neysluverðs hækkar um 0,6 prósent milli mánaða. Er verðbólga því 7,9 prósent á ársgrundvelli og hjaðnar um 0,1 prósentustig milli mánaða.

Hafa ekki valið enskt heiti fyrir Kerið
„Við erum mjög ánægðir með að hafa náð að klára þessi viðskipti og erum mjög spenntir fyrir því að taka við þessum stað og reyna að varðveita hann og byggja upp sem öflugan ferðamannastað,“ segir forstjóri Arctic adventures um kaup á Kerinu. Kaupverðið er trúnaðarmál og Kerinu hefur ekki verið fundið nýtt nafn.

Þekktur fluggreinandi lofar „kraftaverk“ Play
Norski fluggreinandinn Hans Jørgen Elnæs segir flugfélagið Play hafa gert „kraftaverk“ með því að hafa skilað hagnaði upp á 5,2 milljónir bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi.

Gömlu húsakynni Húrra glædd nýju lífi
Skemmtistaðurinn Húrra fær endurnýjun lífdaga von bráðar en rekstrarstjóri skemmtistaðarins Bravó hyggst opna þar nýjan stað, sem ber nafnið Radar. Áhersla verður lögð á raftónlist og þá tekur Bravó einnig breytingum. Nýi staðurinn opnar í nóvember.

Tinna er ný markaðsstýra Orku náttúrunnar
Orka náttúrunnar hefur ráðið Tinnu Jóhannsdóttur í starf markaðsstýru fyrirtækisins og hefur hún nú þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Ívilnanir vegna rafmagnsbíla reiðarslag fyrir bílasala
Bílasalar voru að uppgötva sér til mikillar hrellingar að allar ívilnanir ríkisins til fólks sem vill kaupa sér rafmagnsbíl stuðli að viðskiptum við umboðin meðan þeir sitja eftir með sárt ennið.

PayAnalytics hlaut Nýsköpunarverðlaun Íslands 2023
Hugbúnaðarfyrirtækið PayAnalytics hlaut í gær Nýsköpunarverðlaun Íslands 2023. Fyrirtækið hefur þróað jafnlaunahugbúnað sem gerir launagreiðendum kleift að mæla launabil, loka launabilum og halda launabilum lokuðum.

Ráðin sviðsstjóri sölusviðs Hreint
Sólrún Björk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri sölusviðs hjá ræstingafyrirtækinu Hreint. Hlutverk hennar verður að efla og samræma sölustarf og auka ráðgjöf til viðskiptavina.

Norvik gerir yfirtökutilboð í nítján milljarða króna félag
Norvik hefur sent tilkynningu til sænsku Kauphallarinnar um að lagt verði fram valfrjálst yfirtökutilboð í allt hlutafé Bergs Timber AB, sem starfar í alþjóðlegum timburiðnaði. Tilboðið hljóðar upp á gengið 44,50 sænskar krónur fyrir hvern hlut í Bergs í reiðufé. Heildarverðmæti hlutafjár Bergs er því áætlað 1,54 milljarðar sænskra króna, sem samsvarar um 19,3 milljörðum íslenskra króna.

Barbara Inga ráðin regluvörður Íslandsbanka
Barbara Inga Albertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Regluvörslu Íslandsbanka.

Valdís ráðin mannauðsstjóri Sýnar
Valdís Arnórsdóttir hefur verið ráðin mannauðstjóri Sýnar. hún leiða áfram teymi mannauðsmála og eignaumsýslu hjá félaginu.

Play skilar hagnaði eftir skatt í fyrsta sinn
Flugfélagið Play skilaði hagnaði upp á 5,2 milljónir bandaríkjadala, eða því sem nemur 724 milljónum íslenskra króna á þariðja ársfjórðungi 2023. Í samanburði tapaði félagið 2,9 milljónum bandaríkjadala, 404 milljónum króna á sama tímabili í fyrra. Forstjóri félagsins segist stoltur af árangrinum en um sé að ræða fyrsta skiptið sem félagið skili hagnaði eftir skatt.

Arion banki skilaði 6,1 milljarða hagnaði á þriðja ársfjórðungi
Arion banki hagnaðist um 6.131 milljónir króna á þriðja ársfjórðungi 2023, í samanburði við 5.008 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá bankanum.

Bein útsending: Nýsköpunarþing 2023 - Líf í lífvísindum
Hugverkastofan, Rannís, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins standa fyrir Nýsköpunarþingi 2023 sem fram fer í Grósku milli klukkan 13:30 og 15:00. Á þinginu verður kastljósinu beint að nýsköpunarfyrirtækjum sem starfa á sviði líf- og heilbrigðisvísinda.

Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á þriðja ársfjórðungi
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2023 var 22,4 milljarðar króna, þar af 7,9 milljarðar króna á þriðja ársfjórðungi.

Nýtt félag um heilbrigðislausnir Origo stofnað
Origo mun um mánaðamót stofna nýtt og sjálfstætt félag í kring um heilbrigðislausnir Origo, sem fær nafnið Helix. Markmið félagsins verður að flétta saman tækni, hugvit og innsæi til að bæta líf þeirra sem þiggja og veita heilbrigðisþjónustu.

Marinó tekur við Mílu af Marion
Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka, hefur verið kjörinn stjórnarformaður Mílu. Hann tekur við hlutverkinu af Marion Calcine, sem sinnti hlutverkinu tímabundið en situr áfram í stjórn félagsins.

70 prósenta samdráttur í nýbyggingum milli ára
Verulegur samdráttur hefur orðið í nýbyggingum milli ára og þá hefur einnig dregið verulega úr sölu nýrra íbúða. Kaupsamningum fjölgar hins vegar almennt milli mánaða.

Nýjar outlet fataverslanir opna í Holtagörðum
Þrjár fataverslanir, NTC, S4S og Föt og skór, opna nýjar verslanir í Holtagörðum á morgun, svokallaðar „outlet“ verslanir. Verslanirnar eru alls um 4.500 fermetrar að stærð.

Afkoma Hafnarfjarðarbæjar betri en var vænst
Afkoma Hafnarfjarðarbæjar á fyrri helmingi þessa árs var 208 milljónum króna betri en áætlanir geðru ráð fyrir. Eiginfjárhlutfall bæjarins og fyrirtækja í eigu hans nam 32,2 prósentum í lok júnímánaðar.

Bergný og Elín ráðnar til Kadeco
Kadeco hefur ráðið til starfa þær Bergnýju Jónu Sævarsdóttur og Elínu R. Guðnadóttur. Bergný er nýr sjálfbærnistjóri Kadeco og Elín nýr yfirverkefnastjóri.

Telma til Héðins
Telma Sveinsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri véltæknifyrirtækisins Héðins.

Stóru viðskiptabankarnir þrír lokaðir á morgun
Landsbankinn og Íslandsbanki munu loka útibúum sínum um allt land vegna kvennaverkfallsins á morgun. Fyrr í dag var greint frá því að Arion banki myndi loka af sömu ástæðu. Þar af leiðandi verða útibú stóru viðskiptabankanna þriggja lokuð.

Arion banki lokar útibúum á morgun
Útibú Arion banka verða lokuð á morgun, þriðjudag, vegna kvennaverkfalls.

Páll í Toyota er látinn
Páll Breiðdal Samúelsson, fyrrverandi forstjóri Toyota, er látinn. Páll, sem ávallt var kenndur við Toyota var 94 ára að aldri þegar hann skildi við en síðustu árin dvaldi hann að hjúkrunarheimilinu Sólvöllum á Eyrarbakka þar sem hann andaðist.

Ráðin framkvæmdastjóri Two Birds og Aurbjargar
Ásdís Arna Gottskálksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Two Birds ehf. sem er rekstraraðili Aurbjorg.is. Hún kemur til Two Birds frá Abler þar sem hún starfaði sem fjármála - og rekstrarstjóri og bar meðal annars ábyrgð á fjármálum, áætlunum og daglegum rekstri félagsins.

Halldóra Anna stýrir markaðsmálum Vinnupalla
Halldóra Anna Hagalín hefur verið ráðin til að sjá um markaðsmál Vinnupalla.

Skýr merki um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar
Nýjar tölur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sýna að framkvæmdir eru hafnar við byggingu á 8.683 íbúðum. Mikill samdráttur er þó í fjölda nýrra framkvæmda og nemur hann um 68 prósent á milli ára. Skýr merki eru um að erfiðara gangi að selja nýbyggingar.

Ákváðu að kaupa Kerið í hálfgerðu bríaríi
„Við höfðum bara náttúruvernd í huga og engum hugkvæmdist gjaldtaka. Þetta var skyndiákvörðun, tekin í hálfgerðu bríaríi. Það er ekki á hverjum degi sem hægt er að eignast eldgíg,“ segir Óskar Magnússon um kaup á Kerinu fyrir 23 árum.

Aðstoða fyrirtæki að vernda uppljóstrara
Ný lausn frá fyrirtækinu Origo, sem hjálpar fyrirtækjum að uppfylla lög um vernd uppljóstrara, var kynnt í vikunni. Lögin tóku gildi 1. janúar 2020 en sveitarfélögum, stofnunum og fyrirtækjum hefur reynst þrautinni þyngri að uppfylla lagakröfurnar.