Viðskipti erlent

IPhone 5 væntanlegur

Talið er að Apple muni kynna næstu týpu iPhone símans vinsæla á þriðjudaginn kemur. Miklar umræður hafa skapast um hverjar nýjungarnar verði en talið er að þónokkrar breytingar séu væntanlegar. Hvað varðar innviði nýja símans er talið að iPhone 5 muni notast við sama örgjörva og er í spjaldtölvunni iPad 2. Þannig verður síminn mun kraftmeiri en áður. Einnig er talið líklegt að útlitsbreytingar verði miklar. Skjárinn mun hugsanlega verða stærri og mögulega verður bakhlið tækisins kúpt en ekki flöt eins og nú er. Að auki telja sérfræðingar að líklegt sé að IPhone 5 muni styðja þrívídd en fyrr á árinu gaf fyrirtækið HTC út fyrsta símann sem útbúinn er þrívíddar skjá.

Viðskipti erlent

Nokia leggur niður þúsundir starfa

Farsímaframleiðandinn Nokia ætlar að skera niður um 3500 störf og loka verksmiðju í Rúmeníu. Fyrirtækið hafði áður áformað að segja upp þúsundum manna annarsstaðar í tengslum við niðurskurð fyrirtækisins sem nemur einum milljarði evra, eða um 160 milljörðum króna. Samkvæmt fréttum BBC fréttastofunnar mun fyrirtækið svo skoða hvernig starfsemi verður háttað í framtíðinni í Finnlandi, Ungverjalandi og Mexíkó. Hlutabréf í Nokia hafa fallið um helming á þessu ári og lækkuðu um 1,6% við opnun markaða í morgun.

Viðskipti erlent

Facebook og Apple kynna nýjungar

Talið er líklegt að Facebook muni kynna sérhæft forrit fyrir Ipad í næstu viku. Hingað til hefur samskiptasíðan hundsað spjaldtölvu Apple og hafa notendur þurft að notast við forrit í gegnum þriðja aðila til að tengast Facebook. En nú telja sérfræðingar að Facebook muni opinbera sérhæft forrit fyrir Ipad. Ekki einungis er um að ræða hefðbundið Ipad app, því nú þykir ljóst að HTML5 ívafsmálið sé notað til að kóða forritið. HTML5 er merkilegt fyrir þær sakir að með því er hægt að miðla ýmsu efni sem ekki var mögulegt áður. Tekur þetta einna helst til Flash efnis sem sárlega hefur verið saknað í jaðartækjum Apple.

Viðskipti erlent

Strangar fjárlagareglur fyrir aðildarríki ESB samþykktar

Evrópuþingið samþykkti í gær nýjar og strangari fjárlagareglur fyrir aðildarríkin, sem á að efla samstarf þeirra í ríkisfjármálum og koma í veg fyrir óhóflega skuldasöfnun. Heilt ár er liðið síðan framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti tillögur sínar að þessum nýju reglum. Þeim er ætlað að draga úr líkum þess að aðildarríkin lendi í vanda á borð við þann, sem Grikkir og fleiri þjóðir evrusvæðisins glíma nú við.

Viðskipti erlent

Skoda kynnir nýjan smábíl

Bílaframleiðandinn Skoda er um þessar mundir að kynna nýja tegund af smábíl, sem er hugsaður fyrir þá sem eru að kaupa sér bíl í fyrsta skipti eða eiga fyrir einn bíl í fjölskyldunni.

Viðskipti erlent

Amazon kynnir Kindle Fire

Vefverslunarfyrirtækið Amazon.com mun í dag opinbera sína nýjustu vöru - Kindle Fire. Amazon fer þannig í beina samkeppni við Ipad tölvu Apple risans. Kindle Fire mun státa af 7 tommu snertiskjá og verður knúinn af Android stýrikerfinu. Notendur munu þó vætanlega ekki kannast við stýrikerfið enda hefur Amazon algjörlega endurhannað viðmót þess. Á síðustu mánuðum hefur Amazon kvatt hugbúnaðarframleiðendur til að þróa ný forrit fyrir Kindle Fire. Sérfræðingar telja að tölvan muni taka snið af Blackberry Playbook og muni einnig notast við sama örgjörva.

Viðskipti erlent

Vilja skatt á fjármagnsflutninga

Framkvæmdastjórn Evrópusambandins hefur formlega lagt til skatt á fjármagnsflutninga í öllum ríkjum Evrópusamstarfsins. Gert er ráð fyrir að skatturinn myndi afla um 57 milljarða evra tekna á ári og yrði settur á í byrjun ársins 2014.

Viðskipti erlent

Papandreu segir Grikki standa við sitt

Gríski forsætisráðherrann staðhæfir að Grikkir geti staðið við allar skuldbindingar sínar. Georg Papandreu sagði þetta á fundi í Þýskalandi í gær en þar ræddi hann við forkólfa þýsks viðskiptalífs. Síðar um daginn fundaði hann með Angelu Merkel Þýskalandskanslara.

Viðskipti erlent

Nýi síminn á leiðinni

Apple, sem framleiðir meðal annars iPad og iPhone, hefur staðfest að nýjasta kynslóðin af iPhone verði kynnt þann fjórða október. Sögusagnir um þetta voru þegar farnar að berast manna á milli. Í dag var einnig greint frá því að sama dag og Apple mun kynna nýja símann mun Facebook kynna nýtt forrit fyrir iPad og nýja útgáfu af slíku forriti fyrir iPhone símana. Það eru því spennandi tímar framundan fyrir tækniunnendur.

Viðskipti erlent

"Ríkisstjórnir stjórna ekki heiminum, Goldman Sachs gerir það“

Hlutabréf hækkuðu talsvert í viðskiptum í morgun og er það rakið til vaxandi væntinga um að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og leiðtogar á evrusvæðunum nái samkomulagi um lausn á skuldavandanum í evrulöndunum. Verðbréfamiðlari segir það engu skipta, þar sem ríkisstjórnir stjórni ekki heiminum. Hann spáir því að sparifé milljóna manna muni hverfa innan árs.

Viðskipti erlent

Von á nýjum Lada

Von er á nýjum Ladabílum aftur á markað á næstunni. Það er Steve Mattin, sem var yfirhönnuður hjá Volvoverksmiðjunum allt til ársins 2009, sem vinnur að hönnun nýju bílanna. Mattin var rekinn úr starfi sínu hjá Volvo af ástæðum sem ekki eru þekktar. Hann mun hefja störf hjá rússneska bílaframleiðandanum AvtoVAZ, sem framleiðir Lada.

Viðskipti erlent

Nubo horfir til fleiri Norðurlanda

Huang Nubo, kínverski milljarðamæringurinn sem hefur stórhuga áform um ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum, segir í viðtali við Bloomberg fréttaveituna að hann hafi áhuga á frekari fjárfestingum í ferðaþjónustu annars staðar á Norðurlöndum.

Viðskipti erlent

Markaðir í Evrópu taka við sér

Hlutabréf á mörkuðum í Evrópu lækkuðu við opnun klukkan sjö í morgun þrátt fyrir fregnirnar af björgunarpakkanum sem nú berast frá Washington. Þetta þótti benda til þess að fjárfestar hafi litla trú á því að stjórnmálamönnum takist að gera björgunarpakkann að veruleika en nú hafa markaðir tekið við sér og nú eru flestar tölur grænar, sem merkir hækkun.

Viðskipti erlent

Fyrsta Dreamliner vélin afhent

Boeing flugvélaverksmiðjurnar hafa afhent fyrstu 787 Dreamliner farþegaþotuna til japanska flugfélagsins All Nippon Airways. Vélin fer í almenna notkun í næsta mánuði en hún er þremur árum á eftir upphaflegri áætlun og segir breska blaðið Guardian að tafirnar hafi kostað Boeing milljarða dollara og sérfræðingar efast um að vélin fari að skila félaginu hagnaði fyrr en í fyrsta lagi að áratugi liðnum.

Viðskipti erlent

Grikkir fái helming skulda sinna afskrifaðan

Í höfuðstöðvum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington leggja menn nú á ráðin um viðamikinn björgunarpakka fyrir ríki evrusvæðisins. Búist er við því að áætlunin sem nú er í bígerð feli í sér að helmingur allra ríkisskulda Grikkja verði afskrifaður auk þess sem björgunarsjóður evrusvæðisins verði fjórfaldaður og telji í framtíðinni 2000 milljarða evra.

Viðskipti erlent

Leysa þarf vanda evruríkja án tafar

Verði skuldavandi evruríkjanna ekki leystur án tafar gæti það leitt til þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ráði ekki yfir nægum fjármunum til að aðstoða önnur ríki í vanda. Þetta er mat seðlabankastjóra Kína og framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Viðskipti erlent

Mótmælendur handteknir á Wall Street

Um áttatíu mótmælendur voru í gær handteknir skammt frá kauphöllinni í New York en stíf mótmæli hafa verið á Wall Street undanfarna viku. Mótmælendurnir eru að andmæla kapítalisma og björgun bankanna.

Viðskipti erlent

Verðfallið hélt áfram í Asíu

Hlutabréf í Asíu héldu áfram að lækka við lokun markaða þar í nótt og fylgja lækkanirnar í kjölfarið á mikilli lækkun í Evrópu og Bandaríkjunum í gær. Vikan sem er að líða er því sú versta fyrir hlutabréfamarkaðina frá árinu 2008.

Viðskipti erlent

Ekkert lát á lækkunum

Ekkert lát hefur orðið á lækkunum á mörkuðum í Evrópu í dag. Hlutabréf í bönkum, námufyrirtækjum og olíufyrirtækjum hafa lækkað mest en fjárfestar óttast enn ástandið í Grikklandi og ástand efnahagsmála heimsins almennt. Lækkanirnar í Evrópu koma í kjölfarið á lækkunum í Bandaríkjunum í gær og þá lækkuðu helstu vísitölur í Asíu fyrir lokun í nótt. FTSE vísitalan í London hefur lækkað um um 4,75 prósent það sem af er degi, DAX vísitalan í Frankfurt hefur lækkað um 4,37 og CAC vísitalan í París hefur hrunið um fimm prósent..

Viðskipti erlent

Rauðar tölur á mörkuðum í Evrópu

Miklar lækkanir urðu á mörkuðum í Evrópu við opnun í morgun. Hlutabréf í bönkum, námufyrirtækjum og olíufyrirtækjum urðu verst úti en fjárfestar óttast enn ástandið í Grikklandi og ástand efnahagsmála heimsins almennt. Lækkanirnar í Evrópu koma í kjölfarið á lækkunum í Bandaríkjunum í gær og þá lækkuðu helstu vísitölur í Asíu fyrir lokun í nótt. FTSE vísitalan í London lækkaði um 3,2 prósent við opnun og DAX vísitalan í Frankfurt fór niður um 3,5 prósent.

Viðskipti erlent

Grikkir efna til verkfalla - mikil mótmæli í Aþenu

Verkföll lama nú samfélagið í Grikklandi en allar almenningssamgöngur hafa stöðvast í sólarhringsverkfalli sem ætlað er að mótmæla niðurskurðartillögum ríkisstjórnarinnar. Þá er búist við gríðarlegu fjölmenni þegar opinberir starfsmenn koma saman í Aþenu í dag til að mótmæla.

Viðskipti erlent

Ikea opnar sérstakt karlaland

Ikea í Melbourne í Ástralíu ætlar að taka upp á þeirri nýbreytni að bjóða upp á sérstakt karlaland í verslun sinni. Þessi hluti verslunarinnar verður, eðli málsins samkvæmt, einungis opinn körlum. Hugmyndin er sú að þetta verði nokkurs konar athvarf fyrir karlmenn þar sem þeir geti borðað ókeypis pylsur, horft á íþróttir og spilað Xbox tölvuleiki á meðan betri helmingurinn skoðar húsgögn og annað þarfaþing fyrir heimilið.

Viðskipti erlent

AGS telur hagkerfið hafa veikst umtalsvert

Alþjóðahagkerfið hefur veikst umtalsvert á síðastliðnum mánuðum, segir í árshlutaskýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Úrræðaleysi ríkisstjórna hefur orðið til þess að bæta við þau vandamál sem liggja í loftinu. Alþjóðagjaldeyrissjóðiurinn segir að hagkerfið í Bretlandi muni vaxa hægar en áður var gert ráð fyrir. Gert var ráð fyrir 1,5% hagvexti en samkvæmt skýrslunni er nú gert ráð fyrir 1,1% hagvexti. Stjórnvöld í Bretlandi gera aftur á móti enn ráð fyrir 1,7% hagvexti en viðurkenna að sú tala muni lækka þegar spáin verður endurskoðuð næst.

Viðskipti erlent