Veður
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 44 ›
Gular viðvaranir víðs vegar um landið Gular viðvaranir eru víðs vegar um landið í dag. Sjö af þeim ellefu landshlutum sem Veðurstofan skiptir landinu í eru gulir á korti hennar í dag. Veður 19.5.2024 09:03
Suðvestlæg átt og skúrir eða slydduél Dálítil lægð mjakast nú til austurs skammt fyrir norðan land í dag og verður áttin því suðvestlæg á landinu í dag. Veður 17.5.2024 07:13
Víða gola og dálítil væta Grunn og hægfara lægð á Grænlandshafi stjórnar veðrinu á landinu í dag þar sem verður suðlæg eða breytileg átt. Víða má reikna með golu eða kalda og dálítilli vætu, en yfirleitt þurrt um landið austanvert. Veður 16.5.2024 07:18
Hiti gæti náð fimmtán stigum norðaustantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustlæg átt í dag, víða golu, og dálitlar skúrir sunnan- og vestantil. Veður 15.5.2024 07:10
Víðast bjart en dálitlar skúrir sunnanlands Lítil hæð þokast yfir landið í dag og má reikna með fremur hægum vindi og víða björtu veðri. Þó verða dálitlar skúrir sunnanlands. Veður 14.5.2024 07:07
Þurrt suðvestantil og hiti á landinu að tólf stigum Lítil lægð mun dóla sér í rólegheitum austur með suðurstönd landsins í dag sem gerir að það að verkum að vindáttin verður norðlæg. Veður 13.5.2024 07:08
Vaxandi suðaustanátt og bætir í rigningu Veðurstofan gerir ráð fyrir vaxandi suðaustanátt á landinu í dag þar sem lægð suður af Hvarfi nálgast landið úr suðvestri. Veður 10.5.2024 07:11
Léttskýjað í dag en von á nýrri lægð á morgun Í dag er hæð suðaustur af landinu sem er á leið austur. Það er því hægviðri á sunnanverðu landinu í dag en suðvestan 5 til 13 metrar á sekúndu bæði norðan- og norðvestanlands. Hvassast er á annesjum er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Veður 9.5.2024 07:18
Líkur á stöku skúrum eða slydduéljum fram eftir degi Háþrýstisvæði á Grænlandshafi og lægð fyrir norðan land beinir nú vestlægri átt til landsins og má reikna með að víða verði gola eða kaldi í dag. Léttskýjað verður á Suðausturlandi, en bjart með köflum annars staðar og líkur á stöku skúrum eða slydduéljum fram eftir degi. Veður 8.5.2024 07:11
Skúrir og slydduél í suðlægum áttum Lægð á Grænlandshafi beinir suðlægri átt, víða fimm til þrettán metrum á sekúndu, til landsins í dag. Gera má ráð fyrir skúrum eða slydduéljum, en snjóéljum á fjallvegum. Veður 7.5.2024 07:12
Svölu og óstöðugu skúralofti beint til landsins Lægð er nú stödd fyrir vestan land og beinir hún svölu og óstöðugu skúralofti til landsins í dag og á morgun. Veður 6.5.2024 07:11
Búast má við slyddu Lægð vestur af landinu beinir suðlægri átt, víða 5 til 10 metrum á sekúndu, til landsins með skúrum. Loftmassinn yfir landinu er svalur og óstöðugur og því ætti ekki að koma að óvart þó sumir skúrirnir verði á formi slydduélja. Veður 5.5.2024 08:33
Rigning með köflum víðast hvar Lægðasvæði suðvestur og vestur af landinu stýrir veðrinu hjá okkur næstu daga og má gera ráð fyrir rigningu með köflum í dag en þurru fram eftir degi norðaustanlands. Veður 3.5.2024 07:14
Víðast dálitlar skúrir en bjartara norðanlands Lægðasvæði fyrir vestan land stýrir veðrinu á landinu og það er útlit fyrir fremur rólega sunnanátt næstu daga. Veður 2.5.2024 07:13
Bjartviðri á verkalýðsdaginn Verkalýðsdagurinn heilsar með hægum vindi og yfirleitt björtu veðri. Veður 1.5.2024 07:34
Að mestu léttskýjað sunnan- og vestantil Veðurstofan gerir ráð fyrir að í dag verði norðan og norðaustanátt fimm til tíu metrar á sekúndu en á Austfjörðum verði tíu til fimmtán metrar á sekúndu. Veður 30.4.2024 07:08
Norðlægari vindur í dag en um helgina Í dag verður vindur norðlægari en var um helgina. Á Austfjörðum verður strekkingur, en annars hægari vindur. Lítilsháttar skúrir eða él verða á Norður- og Austurlandi, en bjart með köflum suðvestanlands. Hiti verður á bilinu tvö til 12 stig, mildast verður syðra. Veður 29.4.2024 07:16
Hvassast sunnantil og hlýjast vestantil Í dag er spáð austan strekkingi syðst á landinu, en annars hægari vind. Stöku skúrir verða víða um land og það gæti gert stöku skúrir á höfuðborgarsvæðinu, en lengst af verður þurrt og bjart á Norðvestur- og Vesturlandi. Veður 28.4.2024 07:37
Lægð nálgast landið úr austri Dálítil lægð nálgast nú landið úr austri og verður því norðan- og norðaustanátt í dag. Víða kaldi eða stinningskaldi og dálitlar skúrir eða él, en bjart að mestu um landið suðvestanvert. Veður 27.4.2024 07:12
Bjart sunnan heiða en þungbúið á Norður- og Austurlandi Gera má ráð fyrir tilbreytingarlitlu veðri næstu daga þar sem áttin verður norðlæg og fremur kalt á Norður- og Austurlandi í þungbúnu veðri. Sunnan heiða verður bjartara um að litast og yfir daginn mun sólin ylja þannig að hitinn verði viðunandi. Veður 26.4.2024 07:14
Sól og allt að þrettán gráður í borginni Svo virðist sem sumardagurinn fyrsti ætli loksins að standa undir nafni, að minnsta kosti á suðversturhorninu. Hitastig nær allt að þrettán stigum suðvestantil en núll stigum austantil í dag. Veður 25.4.2024 08:11
Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Síðasti vetrardagur er í dag 24. apríl, en nýafstaðinn vetur var sá kaldasti á Íslandi síðan 1998-1999. Meðalhiti á landsvísu var -0,2 stig sem er 1,2 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Veður 24.4.2024 19:03
Þurrt að mestu og hiti að tólf stigum Útlit er fyrir hæglætisveður í dag þar sem verður þurrt að mestu og milt. Reikna má með heldur meira af skýjum en í gær, en það ætti að sjást víða til sólar. Veður 24.4.2024 07:12
Hægur vindur og sólríkt veður Hæðarhryggur er nú yfir landinu með hægum vindi og sólríku veðri, en skýjabakkar ná inn á vestanvert landið í dag og má þar búast við dálítilli súld við ströndina. Veður 23.4.2024 07:35
Hiti að þrettán stigum Hæð vestur af Írlandi þokast í átt að landinu í dag og er útlit fyrir fremur hægan vind og víða léttskýjuðu. Veður 22.4.2024 07:10
Siggi stormur lofar hlýju og sólríku sumri Veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi stormur, segir einstaka veðurblíðu vera framundan og ekki nóg með það heldur sé sólríkt, hlýtt og þurrt sumar í kortunum. Veður 21.4.2024 19:27
Gul viðvörun á Norðurlandi eystra Gul viðvörun er á Norðurlandi eystra á milli klukkan ellefu og fimm í dag. Ástæðan er suðvestan stormur, sem gæti verið hvað verstur á Tröllaskaga. Vindhviður munu víða vera yfir 35 metra á sekúndu að sögn Veðurstofu. Veður 21.4.2024 08:31
Víða blautt í dag og varað við asahláku Í dag gengur í sunnan strekking eða allhvassan vind með súld eða rigningu sunnan- og vestanlands. Norðaustan til verður úrkomuminna. Síðdegis bætir í rigningu, og verður talsverð rigning á Vesturlandi. Hiti verður víða fimm til 12 stig, hlýjast í hnúkaþey fyrir norðan og austan. Veður 20.4.2024 09:15
Víða rigning og slydda en ljúfasta veður í næstu viku Breytinga er að vænta í veðurlagi í dag en þegar líður á daginn mun ganga í ákveðna suðaustanátt með rigningu eða slyddu á láglendi á sunnan- og vestanverðu landinu. Það mun hlýna í veðri, en það mun þó taka tíma fyrir sunnanáttina að blása kuldanum burt af landinu. Veður 19.4.2024 07:09
Glæsilegur þokubogi í Gunnarsholti Þokubogi myndaðist í Gunnarsholti í Rangárvallasýslu í morgun. Þokubogi er eins og hvítur regnbogi. Veður 18.4.2024 09:09