Tónlist
220 221 222 223 224 225 226 … 226 ›
Enn hávaði og kraftur Það áttu ekki margir von á því að gömlu brýnin í bresku rokksveitinni The Who ættu eftir að gefa út plötu með nýju efni, en nú er hún staðreynd. Endless Wire kemur út tæpum aldarfjórðungi á eftir síðustu hljóðversplötu þeirra, It’s Hard. Trausti Júlíusson komst að því að nýja platan sver sig í ætt við fyrri verk sveitarinnar. Tónlist 3.11.2006 10:15
Ástarsól Óskars Komin er út þriðja sólóplata Óskars Péturssonar, Ástarsól, en fyrri plötur Óskars hafa báðar náð metsölu. Á plötunni flytur Óskar lög Gunnars Þórðarsonar sem ávallt hefur verið í miklum metum hjá Óskari og hann hefur borið mikla virðingu fyrir sem lagahöfundi. Óskar syngur fjórtán lög Gunnars og þar af níu ný lög. Meðal eldri laga á plötunni eru: Ástarsæla, Vetrarsól, Bláu augun þín, Hafið og Reykjavík. Tónlist 3.11.2006 08:30
Tónleikar í þrívídd Næsta sumar eða haust kemur á hvíta tjaldið tónleikamynd með hljómsveitinni U2 í þrívídd. Verið er að vinna úr rúmlega 700 klukkutímum af efni sem var tekið upp á Vertigo-tónleikaferð sveitarinnar um Suður-Ameríku í febrúar og mars síðastliðnum. Tónlist 3.11.2006 08:00
Erlendir upptökustjórar bjóða fram krafta sína Frumburður hljómsveitarinnar Shadow Parade, Dubious Intentions, er kominn út. Freyr Bjarnason spjallaði við söngvarann Begga Dan um plötuna og þann langa tíma sem hún tók í vinnslu. Tónlist 2.11.2006 18:00
Fyrsta plata Bríetar Fyrsta sólóplata Idol-stjörnunnar Bríetar Sunnu Valdemarsdóttur er komin út. Lagið „Bara ef þú kemur með“ hefur verið eitt vinsælasta lag sumarsins og er það að sjálfsögðu að finna á plötunni. Tónlist 2.11.2006 17:15
Húsfyllir í Háskólabíói Færri komast að en vilja á tónleika píanóleikarans Víkings Heiðars Ólafssonar sem leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Uppselt er á tónleikana í kvöld og engar ósóttar pantanir í boði en þess má geta að húsfyllir varð einnig á nýafstöðnum afmælistónleikum Karlakórsins Fóstbræðra fyrr í vikunni. Tónlist 2.11.2006 15:15
Keppt um bestu „ábreiðuna“ Í tilefni af 20 ára afmæli „Ammælis“ Sykurmolanna og stórtónleikum þeirra í Laugardalshöll 17. nóvember ætlar Rás 2 að efna til samkeppni um bestu Sykurmola-„ábreiðuna“. Tónlist 2.11.2006 14:45
Músíkalskur málaliði Tónlistarmaðurinn Jóel Pálsson gaf á dögunum út sína fjórðu plötu með eigin tónsmíðum. Hann kveðst vera starfandi málaliði í tónlistarbransanum en nýjasta platan er sannkallaður suðupottur. Tónlist 2.11.2006 13:45
Næsta Who-plata Fyrstu dómar tóku að birtast í gær um nýjan disk bresku hljómsveitarinnar Who en hann ber yfirskriftina Endless Wire og er fyrsta safn nýsmíða sem kemur frá hljómsveitinni í 24 ár. Raunar eru aðeins tveir af upphaflegu hljómsveitarmönnunum á lífi, Keith Moon og John Entwhistle eru báðir látnir og verður engu kennt um ótímabært andlát þeirra en ofneyslu áfengis og annarra vímuefna. Tónlist 2.11.2006 12:45
Píanó Lennons sýnt Popparinn George Michael ætlar að lána píanó sitt sem var í eigu Johns Lennons á sýningu gegn stríði sem verður haldin í Dallas í Bandaríkjunum. Skipuleggjandi hennar er félagi Michaels, Kenny Goss. Tónlist 2.11.2006 12:15
Ritstjóri Kerrang! hrósar Airwaves Ritstjóri tímaritsins Kerrang!, Paul Brannigan, er hæstánægður með nýafstaðna Iceland Airwaves-hátíð. „Það skemmtilegasta við hátíðina var að sjá heimasveitirnar sem maður hefur aldrei heyrt um fara á kostum á litlum stöðum fyrir framan vini sína,“ sagði Brannigan. „Tónlistin er einlæg og raunveruleg, sem er nokkuð sem þú finnur ekki í borgum eins og London, New York eða Los Angeles.“ Tónlist 2.11.2006 11:45
Stendur undir væntingum Magga Stína syngur Megas hefur að geyma ellefu lög og texta eftir Megas í flutningi Möggu Stínu og hljómsveitar sem er skipuð þeim Kristni H. Árnasyni gítarleikara, Þórði Högnasyni kontrabassaleikara, Herði Bragasyni hljómborðsleikara og Matthíasi Hemstock slagverksleikara. Tónlist 2.11.2006 10:30
Touch spilar á Akureyri Hljómsveitin Touch, sem gefur á næstunni út glænýja plötu, spilar í Oddvitahúsinu á Akureyri föstudags- og laugardagskvöld. Sveitin hitaði upp fyrir Bloodhound Gang í Höllinni í september og ætlar sér að vera dugleg við spilamennsku á næstunni. Nýjasta lag Touch, Fucking hypocrites, er nýkomið út og hefur fengið góðar viðtökur. Þeir sem vilja nálgast fleiri upplýsingar um sveitina geta kíkt á myspace.com/touchtheband. Tónlist 2.11.2006 10:00
Þriðja plata My Chemical Romance Bandaríska hljómsveitin My Chemical Romance hefur gefið út sína þriðju plötu, sem nefnist The Black Parade. My Chemical Romance var stofnuð í New Jersey árið 2001 af þeim Gerard Way, Mikey Way, Bob Bryar, Frank Iero, og Ray Toro. Síðasta plata sveitarinnar, Three Cheers for Sweet Revenge, seldist í tveimur milljónum eintaka og kom sveitinni rækilega á kortið. Tónlist 2.11.2006 08:00
Tók upp á Írlandi Will.i.am, meðlimur Black Eyed Peas, tók nýverið upp nokkur lög með popparanum Michael Jackson á Írlandi. Verður þau væntanlega að finna á næstu plötu Jacksons sem kemur út á næsta ári. Tónlist 1.11.2006 18:00
Sameinaðir Bítlar Platan Love með Bítlunum kemur út þann 20. nóvember. Á plötunni er að finna lög sem Sir George Martin, sem var upptökustjóri Bítlanna, og sonur hans Giles endurhljóðblönduðu fyrir sýninguna Cirque du Soleil í Las Vegas. Tónlist 1.11.2006 16:30
Mínus tekur upp nýja plötu í LA Strákarnir í rokksveitinni Mínus halda á vit ævintýranna síðar í mánuðinum. Þeir taka upp næstu plötu sína í Los Angeles undir stjórn mannsins sem tók upp síðustu plötur Tool og Queens of the Stone Age. "Við förum út 27. nóvember og verðum í tvær vikur í Borg englanna, Los Angeles,“ segir Kári Sturluson, umboðsmaður hljómsveitarinnar Mínuss um fyrirhugaðar upptökur á næstu plötu hljómsveitarinnar. Tónlist 1.11.2006 15:30
Leikur tónsmíðar Lars Jansson Stórsveit Reykjavíkur heldur aðra tónleika sína á þessu starfsári í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld kl. 20.30. Tónskáld kvöldsins, stjórnandi og einleikari á píanó er sænski tónlistarmaðurinn Lars Jansson. Tónlist 1.11.2006 14:45
Kvöld söngvaskálda Efnt verður til söngvaskáldakvölds á veitingastaðnum Domo í Þingholtsstræti í kvöld. Þar munu tónskáld, textahöfundar og flytjendur ólíkra kynslóða skiptast á að prufukeyra nýtt frumsamið efni og síðan verður efnt til spunatíðar þar sem Eyþór Gunnarsson, Einar Scheving, Óskar Guðjónsson og Róbert Þórhallsson annast undir- eða meðleik. Tónlist 1.11.2006 14:30
Hinn heilagi Megas Tónlistarkonan Magga Stína hefur gefið út plötuna Magga Stína syngur Megas. Magga Stína segir að platan hafi legið í loftinu síðan hún söng Megasarlagið Fílahirðirinn frá Súrín á afmælistónleikum Megasar í Austurbæ á síðasta ári. Eftir að lagið fór að hljóma í útvarpinu hlaut það fádæma viðtökur og varð það Möggu Stínu hvatning til að taka upp fleiri lög eftir meistarann. Tónlist 1.11.2006 13:30
Fyrsta sinn í níu ár Poppkóngurinn Michael Jackson mun koma í fyrsta skiptið fram í Bretlandi í níu ár á World Music Awards sem haldið verður í Lundúnum í næsta mánuði. Jackson mun taka þar á móti demantaverðlaunum en þau eru gefin tónlistarmönnum sem hafa selt meira en 100 milljónir platna á ferlinum. Tónlist 1.11.2006 12:30
Fulltrúar Íslands í ham Boðið var upp á rokktónlist frá núverandi og fyrrverandi nýlendum Dana á tónlistarhátíð á Norðuratlantshafsbryggju í Kaupmannahöfn á laugardagskvöld. Það kom í hlut hljómsveitarinnar Ham að kynna íslenskt rokk fyrir tónleikagestum og tókst það vel. Tónlist 1.11.2006 12:00
Brian Jonestown Massacre til Íslands Bandaríska rokksveitin Brian Jonestown Massacre heldur tónleika á Nasa þann 29. nóvember næstkomandi. Forsprakki sveitarinnar, Anton Newcombe, hefur tvívegis komið hingað til lands og hefur lengi staðið til að hljómsveit hans myndi spila hér. Hjálpar þar til vinskapur hans við liðsmenn Singapore Sling, sem hafa spilað með hljómsveitinni á tónleikum erlendis. Tónlist 1.11.2006 08:00
Einar Ágúst á sviði með Skítamóral Ekki hefur mikið spurst til söngvarans Einars Ágústs að undanförnu og því brutust út mikil fagnaðarlæti þegar hann steig á svið með fyrrum félögum sínum í Skítamóral á Nasa um helgina. Tónlist 31.10.2006 16:00
Frumlegur finnskur túlkandi Finnski píanóleikarinn Olli Mustonen hefur verið lengi í sviðsljósinu þrátt fyrir ungan aldur. Hann leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands í dag en á efnisskrá kvöldsins eru tveir píanókonsertar Beethovens og sinfónía eftir Brahms. Tónlist 31.10.2006 14:45
Fær slæma dóma Gagnrýnendur í Bandaríkjunum hafa skotið í kaf nýjan söngleik á Broadway með lögum Bobs Dylan. Tónlist 31.10.2006 14:00
Gangandi kálhaus Söngvarinn Liam Gallagher hefur nú sagt álit sitt á rokkstjörnunni Pete Doherty og eiturlyfjaneyslu hans. Gallagher segir að rokkarinn frægi sé gangandi kálhaus og vælukjói. Tónlist 31.10.2006 13:00
Jackson heiðraður Fyrrverandi konungur poppsins, Michael Jackson, mun taka á móti heiðursverðlaunum fyrir framlag sitt til tónlistarinnar á heimstónlistarhátíðinni í London. Tónlist 31.10.2006 12:00
Ný plata frá Eminem Ný plata frá rapparanum Eminem, The Re-Up, er væntanleg í verslanir 4. desember næstkomandi. Um er að ræða mix-plötu sem Eminem gerði með Dj Whoo Kid. Tónlist 31.10.2006 11:00
Þægilegt og áreynslulaust Þægileg og áreynslulaus plata sem ætti að geta náð til fjöldans þó hér sé hvorki nýstárlegt né framúrskarandi efni á ferð. Tónlist 31.10.2006 08:00