Tíska og hönnun

Götutíska Borgarholtsskóla
Litrík og hressandi götutíska var allsráðandi á Skóhlífadögum í Borgarholtsskóla sem standa núna yfir. Fréttablaðið leit inn og myndaði hressa og káta krakka á göngum skólans.

Raðir og rangar stærðir ekki hindrun í Yeezy droppi
Aftur beið fólk spennt eftir nýjustu skónum í Yeezy Boost línu Kanye West, en fyrir utan bæði karla- og kvennabúð Húrra Reykjavík mynduðust langar raðir um helgina. Einhverjir biðu heila nótt.

Hártískan í sumar klassískari en áður
Styttra hár, meiri krullur, klassískari klipping og djúpir, náttúrulegir litir verða áberandi í hártískunni í vor og sumar. Eðlileg hreyfing í hárinu fær að njóta sín og síðir, þungir toppar.

Körlunum ekki sama um skeggið
Pálmar Magnússon hársnyrtir hlaut viðurkenningu á árlegri nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík síðastliðinn laugardag. Hann fann sína hillu í skeggsnyrtingu og herraklippingum eftir að hafa lært logsuðu og málmsmíði. Hann segir skeggjaða karlmenn hafa miklar skoðanir á skegginu á sér.

Inklaw sýnir á RFF
Strákarnir sem standa á bak við fatamerkið Inklaw verða meðal sýnenda á RFF, Reykjavik Fashion Festival, sem fram fer í Hörpu dagana 23. til 25. mars. Guðjón Geir Geirsson segir það mikinn heiður.

Hreinsar hugann með því að farða sig
Förðunarfræðingurinn Vala Fanney Ívarsdóttir er dugleg við að deila fróðleik um förðun á netinu, bæði á bloggiu Kalon.is og YouTube. Vala er líka virk á samfélagsmiðlum og birtir reglulega förðunarmyndir á Instagram. Lífið fékk að yfirheyra Völu um allt sem tengist förðun.

Gæti ekki verið stoltari af samstarfinu
Breski listamaðurinn James Merry er þekktur fyrir vinnu sína með Björk Guðmundsdóttur en hann er maðurinn á bak við grímurnar sem prýða gjarnan andlit hennar þegar mikið liggur við. Nýverið birti Merry myndband á Facebook-síðu sinni þar sem hann fer yfir verk sín sem hann hefur unnið fyrir Björk síðastliðin átta ár. Þar segist hann ekki geta verið stoltari né ánægðari með samstarf þeirra og "grímuævintýrið“ forvitnilega.

Rándýrt skart þeirra ríku og frægu
Jennifer Lopez fékk nýverið demantshálsmen í gjöf frá nýja kærastanum, tónlistarmanninum Drake. Hálsmenið kostaði sem nemur um 11,5 milljónum íslenskra króna miðað við núverandi gengi, sem er nú víst ekki neitt miðað það sem gengur og gerist í Hollywood.


Með prinsessuhring á fingri
Svartur kjóll og lakkskór eru í uppáhaldi hjá Hönnu Þóru Helgadóttur. Kjóllinn er þægilegur og gott að hlaupa á eftir börnunum í skónum.

Stíllinn breytist ört eftir árstíð og líðan
Fyrirsætan Kolfinna Þorgrímsdóttir er mikil tískuáhugakona og Lífið fékk að yfirheyra hana um áhugaverðan stíl hennar, uppáhaldsflíkur og helstu tískufyrirmyndir svo eitthvað sé nefnt.

Tvö keimlík mynstur valda deilum í íslenska hönnunarheiminum
Facebook-færsla sem hönnuðurinn Linda Björg Árnadóttir birti í gær hefur vakið eftirtekt. Í færslunni vekur Linda athygli á því að flíkur eftir hönnuðinn Andreu Magnúsdóttur séu skreyttar mynstri sem líkist hennar hönnun.

Nýja línan er innblásin af draumaheiminum
Nýjasta lína fatahönnuðarins Hildar Yeoman var að koma í sölu en línan var frumsýnd í sumar á Listahátíð við góðar undirtektir. Hildur segir þessa nýju línu vera nokkuð frábrugðna eldri línum en í henni leynast meðal annars kápur, kjólar og hátíðlegt skart.

Segir skilið við Júniform
Birta Björnsdóttir fatahönnuður hefur sagt skilið við fatamerkið Júniform sem flestar ef ekki allar íslenskar stelpur kannast við. Hún er nú komin með nýja línu á markaðinn og ber hún nafnið By Birta.

Búa til tískuvöru úr austfirsku hreindýraleðri
Hönnuðirnir Elísabet Karlsdóttir og Ágústa Sveinsdóttir skipa þær hönnunartvíeykið Alvöru. Þær frumsýna fatnað og fylgihluti úr leðri í línunni Useless.

Alicia Keys með íslenska slæðu
Ingibjörg Gréta Gísladóttir leikkona fer ekki troðnar slóðir í lífinu. Hún ákvað að snúa baki við leiklistinni og hefja framleiðslu á silkislæðum. Meðal þeirra sem skarta slæðum eru Alicia Keys og Kardashian-systur.

Karl Lagerfeld velur íslenskt
Tískukóngurinn Karl Lagerfeld notar íslenskar húðvörur en þetta kemur fram í nýjasta tölublaði franska Vogue.

Langar að líta út eins og 2007-hnakki
Jóhann Kristófer Stefánsson tók nýverið við sem yfirhönnuður hjá fatamerkinu JÖR ásamt fatahönnuðinum Steinunni Eyju Halldórsdóttur. Jóhann er þó ekki menntaður fatahönnuður heldur er hann sviðshöfundur sem er góður grunnur fyrir fyrir alla sköpun að hans mati.

Grænn silkikjóll varð fyrir valinu
Fatahönnuðurinn Magnea Einarsdóttir er búin að finna jóladressið þetta árið. Hún leitaði ekki lagt yfir skammt því hún klæðist sinni eigin hönnun yfir hátíðirnar.

Hjartað fær að vera úr skínandi gulli
Skartgripahönnuðirnir Orri Finnbogason og Helga G. Friðriksdóttir, sem hanna undir merkinu Orrifinn Skartgripir, senda frá sér sína fimmtu skartgripalínu í dag. Línan kallast Milagros og er innblásin af ferðalagi þeirra um Mexíkó og Perú. "Já, í fyrra fórum við í þessa langþráðu reisu og lögðum mikla áherslu á að skoða fornleifar og gömul hof sem Astekar, Majar og Inkar hafa skilið eftir sig,“ segir Helga.

Svala Björgvins fékk sér tvö ný tattú
Tónlistarkonan Svala Björgvinsdóttir er forfallin áhugakona um húðflúr og skartar nokkrum flúrum sjálf. Nýverið fékk hún sér tvö ný tattú á handleggina sem eru innblásin af kvikmyndinni Blade Runner.

Tískan við þingsetningu
Það voru allir í sínu fínasta pússi við þingsetningu á þriðjudaginn. Björt Ólafsdóttir, þingkona Bjartrar framtíðar, vakti sérstaka athygli en hún klæddist ansi smart dragt. Sömuleiðis vakti Framsóknarkonan Þórunn Egilsdóttir lukku en hún klæddist sínum allra fínustu fötum.

Maísbaun sem poppast út
Birna Karen Einarsdóttir, fatahönnuður hefur opnað Birna pop up shop á Eiðistorgi til 12 desember. Hugmyndin er að bjóða konum uppá að kaupa fatnað sem er ekki bundin við neinar sérstakar árstíðir.

Fjölmargir mættu til að sjá hið gamla lifna við - Myndir
66°Norður hélt skemmtilega kynningu á nýrri afmælislínu af tilefni 90 ára afmælis fyrirtækisins á dögunum.

Innblásturinn er sögur af fólki
Fyrirtækið As We Grow er í dyragættinni á stórum mörkuðum í Asíu og hlaut fyrir skömmu Hönnunarverðlaun Íslands. Sterk siðvitund og nýtni eru hugtök sem skipta eigendur fyrirtækisins miklu.

Óttarr um græna jakkann: „Guli rekkinn inni í skáp orðinn þreyttur og skítugur“
„Ég gerði mér bara ekki grein fyrir því að ég væri kominn með sálarheill landans svona mikið í fangið,“ segir Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, í samtali við Vísi.

Samstarfi 66°Norður og Soulland fagnað með teiti í Kaupmannahöfn
66°Norður fagnaði samstarfi sínu við danska "streetwear“ merkið Soulland nú á dögunum með teiti í verslun íslenska fataframleiðandans í Kaupmannahöfn.

Nauðsynlegt að vera persónulegur
Erna Kristín Stefánsdóttir er umsvifamikil á Snapchat og Instagram þar sem hún auglýsir bæði sína hönnun og annarra. Hún lýkur guðfræðinámi um jólin og segist ætla að verða nútímalegur prestur.

NTC fagnar 40 ára afmæli
Verslunarkeðjan Northern Trading Company fagnar nú fjörutíu ára afmæli. Fyrirtækið hefur verið leiðandi í innflutningi, framleiðslu og sölu á tískufatnaði á Íslandi frá því árið 1976.

Blanda af há- og lágmenningu
Hönnunarfyrirtækið Döðlur hefur vakið mikla athygli fyrir hönnun sína á Oddsson hótelinu í gamla JL húsinu. Virtar hönnunarsíður á borð við Dezeen og DesignMilk hafa fjallað um hönnunina sem þykir skemmtilega óhefðbundin. Hönnun þar sem andstæður kallast á.